Star-Oddi (Stjörnu-Oddi hf.)
Star-Oddi (Stjörnu-Oddi hf.)
Star-Oddi (Stjörnu-Oddi hf.)

Viltu taka þátt í sölustarfi á alþjóðlegum mörkuðum?

Star-Oddi er framsækið íslenskt tæknifyrirtæki sem þróar og framleiðir mælitæki fyrir dýra- og umhverfisrannsóknir í hafi og á landi. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru að mestu erlendir og meðal notenda eru leiðandi háskólar, rannsóknastofnanir og fyrirtæki víða um heim.

Star-Oddi leitar að jákvæðum, skipulögðum og drífandi einstaklingi í fjölbreytt starf við sölustuðning, úrvinnslu pantana og skráningu hraðsendinga, alþjóðleg viðskiptasamskipti og markaðsmál. Starfið hentar einstaklingi sem vill læra, taka virkan þátt og hafa áhrif í litlu en alþjóðlegu fyrirtæki þar sem áreiðanleiki, metnaður og heiðarleiki eru höfð að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið er fjölbreytt og felst meðal annars í stuðningi við söluteymi Star-Odda, samskiptum við viðskiptavini og dreifingaraðila, úrvinnslu pantana og skráningu hraðsendinga, auk reikningagerðar. Þá felur starfið einnig í sér þátttöku í stafrænni markaðssetningu, vinnu við fréttabréf, markpósta, samfélagsmiðla og aðrar stafrænar markaðsleiðir, sem og undirbúning markaðsherferða og eftirfylgni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun tölvukerfa og tölvuforrita ýmiss konar er skilyrði
  • Reynsla af bókhaldskerfum er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
  • Áhugi eða reynsla á stafrænum markaðsmálum er kostur
  • Góðir samskiptahæfileikar í ræðu og riti
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
Auglýsing birt27. júlí 2026
Umsóknarfrestur9. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skeiðarás 12, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Viðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar