

Viðskiptaþróunarstjóri á Íslandi
Coripharma leitar að öflugum, metnaðarfullum og árangursdrifnum viðskiptaþróunarstjóra (e. Business Development Manager) í fullt starf. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að byggja upp sterk viðskiptasambönd, greina ný tækifæri og stuðla að vexti á alþjóðlegum mörkuðum. Um er að ræða spennandi og krefjandi starf í alþjóðlegu viðskiptateymi Coripharma þar sem gefst tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á áframhaldandi uppbyggingu og árangur fyrirtækisins. Starfsstöðin er í höfuðstöðvum Coripharma í Hafnarfirði.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
- Sala á lyfjum og lyfjatengdu hugviti til alþjóðlegra samheitalyfjafyrirtækja.
- Efla og viðhalda langtíma viðskiptasamböndum við viðskiptavini og byggja upp ný viðskiptatengsl.
- Afla nýrra viðskiptatækifæra og veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
- Tilboðsgerð, samningaviðræður og gerð viðskiptasamninga.
- Vinna í nánu samstarfi við aðrar deildir fyrirtækisins til að tryggja farsæla framkvæmd samninga.
- Eftirfylgni samninga til að tryggja farsælt samstarf, áframhaldandi árangur og vöxt í rekstri.
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólagráða sem nýtist í starfi, á sviði heilbrigðis- eða viðskiptafræða.
- Reynsla af viðskiptaþróun og alþjóðlegum viðskiptum innan lyfjaiðnaðar er kostur.
- Þekking og/eða reynsla af samningagerð er kostur.
- Viðskiptadrifinn, greinandi og lausnamiðaður hugsunarháttur.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni ásamt getu til að vinna sjálfstætt.
- Rík þjónustulund og metnaður til að ná árangri.
- Vilji og geta til að ferðast erlendis vegna starfsins.
- Góð enskukunnátta í ræðu og riti.
Við bjóðum:
- Fjölbreytt og áhugavert starf í alþjóðlegu og vaxandi lyfjafyrirtæki.
- Samheldinn og faglegan vinnustað þar sem gæði, öryggi og samvinna eru í fyrirrúmi.
- Sveigjanlegan vinnutíma.
- Niðurgreiddan hádegismat.
Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með um 230 starfsmenn sem byggir á traustum grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki.
Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Umsóknarfrestur er til og með 13 ágúst næstkomandi.
Enska










