Hnit Artelia
Hnit Artelia
Hnit Artelia

Fjármálastjóri

Við hjá Hnit Artelia leitum að öflugum og framsýnum fjármálastjóra sem vill taka virkan þátt í að móta framtíð fyrirtækisins.

Um er að ræða lykilstöðu þar sem fjármálastjóri hefur áhrif á ákvarðanatöku og þróun rekstrar, með áherslu á skilvirka fjármálastýringu og upplýsingadrifna ákvarðanatöku.

Fjármálastjóri Hnit Artelia mun vera í nánu samstarfi við samstarfsfólk á Norðurlöndum innan Artelia Group.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hlutverk og ábyrgð:

·         Ábyrgð á fjárhagslegri stýringu og yfirsýn rekstrar

·         Færsla fjárhags- og launabókhalds ásamt yfirumsjón reikningagerðar

·         Gerð fjárhagsáætlana, rekstraráætlana og eftirfylgni þeirra

·         Ábyrgð á gerð mánaðarlegra fjárhagsskýrslna, þar á meðal þátttaka í mánaðaruppgjöri og lokun bókhalds.

·         Uppsetning og miðlun lykilupplýsinga til stjórnenda

·         Greining fjárhagsgagna og rekstrar til stuðnings við stefnumótun

·         Þróun verkferla með áherslu á sjálfvirknivæðingu og einföldun

·         Samstarf við Artelia Group á Norðurlöndum, m.a. varðandi skýrslugerð og samræmingu

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem

·         Hefur menntun á sviði viðskiptafræði, fjármála eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi.

·         Hefur reynslu af fjármála- og rekstrarstýringu

·         Hefur reynslu af notkun á bókhaldskerfum, t.d. DK.

·         Hefur reynslu af notkun á PowerBI eða sambærilegu BI-kerfi við framsetningu upplýsinga.

·         Hefur sterka greiningarhæfni og góðan skilning á rekstri fyrirtækja

·         Hefur áhuga á að nýta gögn, sjálfvirkni og nýjar lausnir til að bæta verklag

·         Hefur greiningarhæfni til að tengja saman fjármál, rekstur og stefnu

·         Býr yfir góðri samskipta- og samstarfshæfni

·         Hefur sjálfstæð og öguð vinnubrögð

·         Hefur góða kunnáttu í íslensku og ensku

·         Kunnátta í norðurlandatungumáli (dönsku/norsku) er kostur

Auglýsing birt22. júlí 2026
Umsóknarfrestur19. ágúst 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Háaleitisbraut 58-60 58R, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar