Icelandair
Icelandair
Icelandair

Business Control Manager

Við leitumst eftir að ráða sérfræðing á sviði fjármálagreininga og -áætlana (e. Business Control) til þess að þjónusta stjórnendur og svið innan félagsins með fjármálatengdum verkefnum og endurgjöf.

Starfið er hluti af öflugu teymi sérfræðinga sem starfar þvert á rekstrareiningar félagsins og veitir stjórnendum mikilvæga innsýn og stuðning í fjármálatengdum ákvörðunum.

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með sterkan náms- og starfsferil. Viðkomandi mun fá víðtæka þjálfun og stuðning frá reynslumiklum teymismeðlimum og byggja upp djúpa þekkingu á starfsemi flugfélaga og skráðra félaga.

Icelandair rekur stefnu um sveigjanlegt vinnuumhverfi, þar sem starfsmönnum er gefið tækifæri á að vinna í fjarvinnu, frá skrifstofum okkar, eða bland af hvoru tveggja í samráði við næsta yfirmann.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Tekju- og kostnaðargreiningar (almennar og sértækar)
  • Mánaðarlegar afkomuspár (e. rolling forecast)
  • Sjálfvirknivæðing greininga, skýrslugerðar og upplýsingavinnslu með nýtingu gervigreindar og annarra tæknilausna
  • Þróun og viðhald stjórnendaupplýsinga
  • Þátttaka í greiningarfundum með stjórnendum sviða
  • Aðkoma að fjárhagshluta viðskiptaáætlana og ýmsum verkefnum þvert á samstæðu
  • Þátttaka í gerð kynninga og tilkynninga til Kauphallar

Hæfnikröfur:

  • Háskólapróf í viðskipta-/hag-/verkfræði, eða sambærilegum greinum, framhaldsmenntun er ákjósanleg
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði
  • Þekking á fjármálum fyrirtækja og reikningshaldi er æskileg
  • Reynsla af notkun gervigreindar í tengslum við sjálfvirknivæðingu, greiningar eða upplýsingavinnslu er kostur
  • Þekking á flugrekstri er kostur en ekki skilyrði
  • Framúrskarandi greiningarhæfni, nákvæmni og skipulagshæfni eru lykilatriði
  • Viðkomandi verður að sýna mikið frumkvæði, vera árangursdrifinn, metnaðarfullur og tilbúinn að taka leiðandi hlutverk á kynningum og fundum
  • Góð kunnátta í Excel og Power Point er skilyrði; þekking á Cognos og/eða Power BI er kostur
  • Góð kunnátta í ensku og íslensku

Nánari upplýsingar veita:

Eva Brink, Director Business Control, [email protected]

Guðlaug Ólafsdóttir, People Manager, [email protected]

Umsóknarfrestur er til 6. ágúst. Umsóknir verða teknar til skoðunar jafnóðum og þær berast og hvetjum við því áhugasama til að sækja um sem fyrst. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsækjendum verður svarað.

Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

Auglýsing birt9. júlí 2026
Umsóknarfrestur6. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Flugvellir 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar