

Skrifstofu- og rekstrarfulltrúi
Félag fjallaleiðsögumanna á Íslandi leitar að öflugum og skipulögðum skrifstofu- og rekstrarfulltrúa til að sinna fjölbreyttum verkefnum félagsins í 40–50% starfi. Um er að ræða mikilvægt hlutverk í daglegum rekstri félagsins. Áhersla er lögð á góða þjónustu, fagleg vinnubrögð, náið samstarf við stjórn og tækninefnd félagsins og góð samskipti við leiðbeinendur, nemendur og félagsmenn. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
-
Umsjón með skráningu og skipulagningu námskeiða,
-
bókun leiðbeinenda og samskipti við þá,
-
uppsetning skráningarforma og utanumhald þátttakendalista,
-
bókun kennslurýma og annarrar aðstöðu,
-
skráning meðlima,
-
útgáfa- og greiðsla reikninga.
-
umsjón með tölvupósti og svörun fyrirspurna frá nemendum, félagsmönnum og öðrum,
-
stuðningur og samvinna við stjórn og tækninefnd félagsins í daglegum rekstri og stjórnsýslu,
-
umsjón með samfélagsmiðlum félagsins,
-
önnur tilfallandi verkefni sem tengjast starfsemi félagsins.
Við leitum að einstaklingi sem
-
hefur reynslu af skrifstofu-, rekstrar- eða þjónustustörfum,
-
býr yfir góðri skipulags- og samskiptahæfni,
-
vinnur sjálfstætt og sýnir frumkvæði,
-
er nákvæmur og ábyrgur í vinnubrögðum,
-
hefur góða tölvukunnáttu og á auðvelt með að tileinka sér ný kerfi,
-
hefur góða íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti.
Reynsla af reikningagerð, bókhaldi og skipulagningu viðburða er kostur. Eins er menntun sem nýtist í starfi kostur sem og þekking af fjallaleiðsögn.
Við bjóðum
-
sveigjanlegt vinnufyrirkomulag í samráði við stjórn,
-
tækifæri til að taka þátt í þróun og eflingu starfsemi félags fjallaleiðsögumanna á Íslandi,
-
gott starfsumhverfi og fjölbreytt verkefni,
- starf án staðsetningar.
Enska
Íslenska










