Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun

Mannauðssérfræðingur á svið mannauðs og menningar

Umhverfis- og orkustofnun leitar að metnaðarfullum og öflugum einstaklingi í starf sérfræðings á svið mannauðs og menningar. Verkefni sérfræðingsins verða fjölbreytt og krefjandi en meðal annars er sameining heilbrigðiseftirlita sveitarfélaganna við stofnunina fram undan. Umhverfis – og orkustofnun varð til við sameiningu tveggja stofnana fyrir einu og hálfu ári og er því menningarbragurinn okkar ungur en byggir á öflugum grunni. Við leitum að sérfræðingi með reynslu sem hefur brennandi áhuga á umbótum og breytingastjórnun en viðkomandi mun taka virkan þátt í þeim breytingum sem fylgja sameiningunni og umbótaverkefnum stofnunarinnar. Jafnframt mun viðkomandi sinna greiningum og gagnavinnu og framsetningu og túlkun gagna. Einnig verður þjálfun og fræðsla stórt viðfangsefni sviðsins samhliða ferlavinnu og gæðastarfi stofnunarinnar.

Markmið sviðs mannauðs og menningar er að skapa starfsumhverfi þar sem öflugur mannauður, heilbrigð vinnustaðamenning og markviss gæða- og umbótastarfsemi styðja við árangur, starfsgleði og stöðuga þróun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mönnun og móttaka nýs starfsfólks
  • Fræðslumál og starfsþróun
  • Starfsaðstöðumál
  • Aðstoð við launa- og kjaramál
  • Greining mannauðsgagna og utan umhald þeirra
  • Viðverukerfi og verkbókhald
  • Umbætur og breytingastjórnun
  • Mannauðsferlar og stafrænar lausnir
  • Þjónusta og ráðgjöf við starfsfólk og stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði mannauðsmála eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af að starfa við mannauðsmál
  • Reynsla af að starfa í teymi er kostur
  • Stafræn hæfni og greiningarhæfni er mikill kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
  • Góð samstarfshæfni, sveigjanleiki í samskiptum og þjónustumiðuð framkoma
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
Auglýsing birt15. júlí 2026
Umsóknarfrestur17. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar