
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Fulltrúi í viðskiptaþjónustu innanlands
Viðskiptaþjónusta Eimskips Innanlands leitar að metnaðarfullum og ábyrgum starfsmanni til að ganga til liðs við öflugt og þjónustumiðað teymi.
Viðkomandi þarf að vera stundvís, skipulagður í vinnubrögðum og búa yfir framúrskarandi þjónustulund. Starfið felur í sér fjölbreytt samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk, auk þátttöku í daglegum verkefnum sem styðja vðið skilvirka og faglega þjónustu.
Á Innanlandssviði starfa um 400 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á 18 starfsstöðvum víðs vegar um landið. Sviðið er leiðandi í innanlandsflutningum og vörudreifingu, og sinnir jafnframt vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita viðskiptavinum upplýsingar, ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu
- Svara fyrirspurnum í síma, tölvupósti og netspjalli
- Sinna samskiptum og þjónustu við starfsmenn og aðrar deildir fyrirtækisins
- Skrá og vinna úr upplýsingum í upplýsingakerfum félagsins
- Taka þátt í fjölbreyttum tilfallandi verkefnum sem tengjast starfsemi deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
- Framúrskarandi þjónustulund, jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
- Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira
- Heitan mat í hádeginu, fjölbreytt verkefni og góðan starfsanda í samhentu teymi
Auglýsing birt10. júlí 2026
Umsóknarfrestur19. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurSamviskusemiSkipulagStundvísiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Innheimtufulltrúi
Hagvangur

Þjónusturáðgjafi í móttöku bílaverkstæðis
Bílaverkstæðið Fram ehf

Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Alma íbúðafélag, þjónustufulltrúi
Alma íbúðafélag

Front Desk - Reception - Night shifts
ION Hotels ehf

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf

Starfsmaður á stjórnstöð
Öryggismiðstöðin

Starfsmaður í móttöku Tækniskólans
Tækniskólinn

Deildarstjóri framkvæmda og rekstrar á HVest Patreksfirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Starf í eldhúsi og móttöku
Náttúrufræðistofnun

Verkefnisstjóri styrkumsókna og reksturs rannsóknaverkefna
Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Móttökuritari á lögmannsstofu á höfuðborgarsvæðinu.
Lögmannsstofa á höfuðborgarsvæðinu