Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Verkefnisstjóri styrkumsókna og reksturs rannsóknaverkefna

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra styrkumsókna og reksturs rannsóknaverkefna hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hlutverk verkefnisstjórans er að styðja við rannsóknastarf á sviðinu með ráðgjöf og þjónustu við rannsakendur. Starfið heyrir undir rannsóknarstjóra Menntavísindasviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsýsla og fjárhagslegt utanumhald innlendra og erlendra rannsóknaverkefna á Menntavísindasviði.

  • Ábyrgð á skráningu og eftirfylgni fjárhagsupplýsinga rannsóknaverkefna og að bókhaldsgögn séu rétt skráð og uppfærð á hverjum tíma.

  • Stuðningur við starfsfólk við gerð umsókna í innlenda og alþjóðlega rannsóknasjóði og styrkjaáætlanir.

  • Miðlun upplýsinga um reglur og kröfur styrkveitenda sem fjármagna rannsóknir.

  • Þátttaka í innleiðingu stefnu Háskóla Íslands um rannsóknatengd málefni, svo sem skráningu rannsókna, gagnastjórnun og aðgangsstýringar.

  • Skráning upplýsinga um rannsóknir í viðeigandi gagnagrunna.

  • Umsjón með upplýsingasíðu um rannsóknastyrki og rannsóknaverkefni á innri vef.

  • Fræðsla og ráðgjöf til starfsfólks Menntavísindasviðs um rannsóknastyrki og rannsóknatengd málefni.

  • Þátttaka í öðrum fjármála- og stjórnsýsluverkefnum Menntavísindasviðs eftir þörfum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða sem nýtist í starfi. Doktorspróf er kostur.

  • Reynsla af þátttöku í alþjóðlegum rannsókna- og nýsköpunarverkefnum og/eða umsóknagerð og umsýslu slíkra verkefna er æskileg.

  • Reynsla af fjárhagsumsýslu og bókhaldi.

  • Þekking á styrkjakerfi rannsókna og nýsköpunar og helstu innlendum og alþjóðlegum rannsóknasjóðum er kostur.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

  • Hæfni til að setja fram upplýsingar á skýran, hnitmiðaðan og aðgengilegan hátt.

  • Gott vald á upplýsingatækni, meðal annars Excel, og hæfni til að tileinka sér nýjar lausnir og kerfi.

  • Rík þjónustulund, frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum.

Auglýsing birt7. júlí 2026
Umsóknarfrestur6. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hagatorg 1, 107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar