

Tímabundið starf í mannauðsdeild
Við leitum að jákvæðum og skipulögðum einstaklingi til starfa í mannauðsdeild Samskipa. Um er að ræða tímabundið starf vegna fæðingarorlofs.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni og stuðning við daglega starfsemi mannauðsdeildar. Viðkomandi mun sinna verkefnum í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk.
Helstu verkefni
- Samskipti og þjónusta við starfsfólk og stjórnendur
- Skráning og utanumhald gagna í mannauðskerfum
- Stuðningur við launavinnslu og yfirferð tímaskráninga
- Kemur að skipulagningu viðburða og fræðslu
- Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum í mannauðsdeild
Hæfnikröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. mannauðsstjórnun eða sambærilegt nám, er kostur
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Gott tölvulæsi og góð kunnátta í Excel
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Um okkur
Samskip eru alþjóðlegt flutningafyrirtæki með fjölbreytta og fjölþjóðlega vinnustaðamenningu. Við leggjum áherslu á jákvætt starfsumhverfi og velferð starfsfólks, m.a. með góðri aðstöðu til hreyfingar og öflugu mötuneyti.
Umsóknarfrestur er opinn og unnið verður úr umsóknum jafnóðum. Auglýsingin verður opin þar til ráðið hefur verið í stöðuna. Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bára Mjöll Ágústsdóttir, mannauðsstjóri, í netfangið [email protected]
Enska
Íslenska










