

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að öflugum og reynslumiklum mannauðsráðgjafa
Þú vinnur sem hluti af teymi og berð ábyrgð á mannauðráðgjöf til stjórnenda starfsstöðva, auk þess að stýra stefnumótandi umbótaverkefnum.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins er önnur stærsta heilbrigðisstofnun landsins þar sem starfa 1.100 starfsmenn. Okkar frábæra starfsfólk er á 33 starfsstöðvum, m.a. heilsugæslustöðvum, geðheilbrigðisteymum ásamt ýmis konar sérþjónustueiningum á heilbrigðissviði.
Mannauðsráðgjafi er hluti af öflugu mannauðsteymi og heyrir undir framkvæmdastjóra mannauðs. Hlutverk mannauðráðgjafa er mannauðsstuðningur við stjórnendur til að stuðla að eftirsóknarverðu starfsumhverfi, s.s. ráðningar, fræðslumál, starfsþróun, vinnuvernd og heilsueflingar, ráðgjöf um kjarasamninga og starfslok. Hjá okkur taka mannauðsráðgjafar þátt í stefnumótun og bera ábyrgð á umbótaverkefnum samhliða mannauðsráðgjöf.
Fókus á fólk
- Hafa ástríðu og gleði af samskiptum við fólk
- Mynda og rækta uppbyggjandi tengsl
- Koma fram við alla af virðingu.
Mannauðsþekking
- Framhaldsnám á háskólastigi sem nýtist í starfi
- Hið minnsta 5 ára reynsla á sviði mannauðsmála
- Reynsla af starfsumhverfi ríkisstarfsmanna æskileg
- Reynsla úr heilbrigðisþjónustu kostur
Fagmennska
- Ráðgjafafærni og vilji til að veita framúrskarandi þjónustu
- Geta tekið skýrar ákvarðanir um flókin gögn
- Skapa virði með framsýni og umbótahugsun
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
Samvinna
- Frábær teymisfærni og jafningjastuðningur
- Geta tjáð sig í ræðu og á stafrænum miðlum
- Mjög góð íslenskukunnátta
Heilindi og vöxtur
- Treysta og vera treystandi
- Hafa skýr mannleg gildi
- Vilji til að þróast og vaxa í starfi
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska






