
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Þjónustustjóri hjá Eimskip Akureyri
Eimskip leitar að öflugum þjónustustjóra til að ganga til liðs við teymið á Akureyri. Um er að ræða mikilvægt stjórnendahlutverk þar sem áhersla er lögð á leiðtogahæfni, mannauðsmál, þjónustu og árangursríkan rekstur. Þjónustustjóri vinnur náið með svæðisstjóra og verkstjórum að því að efla starfsfólk, bæta þjónustu og tryggja skilvirkan rekstur.
Fyrir réttan aðila er í boði fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf með margvíslegum tækifærum. Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Styðja við og leiða verkstjóra og starfsfólk í vöruhúsi og akstri
- Tryggja skýra forgangsröðun og vandaða framkvæmd verkefna sem skilar árangri í þjónustu og rekstri
- Leiða, efla og þróa verkstjóra og starfsfólk og byggja upp öflugt, samstillt teymi
- Tryggja að mönnun og vaktaplan sé í samræmi við rekstrarþarfir og þjónustustig
- Fylgja eftir frammistöðu, greina niðurstöður og leiða umbótaverkefni
- Viðhalda og bæta verkferla til að tryggja samræmi og gæði í vinnubrögðum
- Efla öryggisvitund starfsfólks og stuðla að öruggu starfsumhverfi
- Viðhalda góðum samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila
- Vinna í nánu samstarfi við svæðisstjóra að áframhaldandi þróun starfseminnar
Hæfniskröfur
- Reynsla af mannauðsmálum, stjórnunar- eða leiðtogahlutverki.
- Reynsla af rekstri vöruhúss, dreifingar eða sambærilegu umhverfi er kostur
- Reynsla af frammistöðustjórnun og eftirfylgni er kostur.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að byggja upp sterkt teymi
- Góð tölvukunnátta og gott vald á íslensku og ensku
Hvað bjóðum við?
- Fjölbreytt verkefni og góðan starfsanda í samhentu teymi þar sem áhersla er á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks.
- Tækifæri til að móta ferla, bæta þjónustu og hafa sýnileg áhrif á árangur
- Öflugt starfsmannafélag og aðgang að orlofshúsum víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakka sem m.a. inniheldur samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk, styrk fyrir sálfræðiþjónustu og krabbameinsskoðun
- Nútímalega vinnuaðstöðu og sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi
Auglýsing birt29. júní 2026
Umsóknarfrestur19. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Strandgata, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMetnaðurÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (9)

Leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks
Sveitarfélagið Skagafjörður

Leikskólastjóri - leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær

Leiðtogi framleiðsluteymis í steypuskála / Coach for the Production Team in the Casthouse
Alcoa Fjarðaál

Stapaskóli – Skólastjóri
Reykjanesbær

Host at Tindasel
Tindasel - The Farm

Reykjavík: Bílstjóri á tunnuþvottabíl (C réttindi)
Íslenska gámafélagið ehf.

Svæðisstjóri óskast í vinnu og virkni
Ás styrktarfélag

Senior Mechanic - Campervan Workshop Manager
Indie Campers

Nettó Ísafirði - Aðstoðarverslunarstjóri
Nettó