
Reykjanesbær
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu.
Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og
ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum
sjónarmiðum.

Fjármála- og stjórnsýslusvið - Launafulltrúi
Reykjanesbær leitar að öflugum launafulltrúa í tímabundið starf til eins árs með möguleika á fastráðningu. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir góðri samskiptahæfni, nákvæmni og getu til að vinna undir álagi.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Launavinnsla
- Skráning og yfirferð ráðningar- og launagagna
- Gerð aðgangskorta
- Upplýsingagjöf og aðstoð til stjórnenda vegna útborgunar launa
- Útreikningur á kjörum og réttindum starfsmanna skv. kjarasamningum
- Önnur verkefni tengd launum og kjörum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af launavinnslu æskileg
- Góð tölvukunnátta, færni í Excel áskilin
- Geta til að vinna undir álagi
- Nákvæmi og tölugleggni
- Góðir samskiptahæfileikar og lipurð í mannlegum samskiptum
- Þekking á launakerfum, s.s. Vinnustund og/eða Kjarna, kostur
Fríðindi í starfi
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Auglýsing birt12. júlí 2026
Umsóknarfrestur24. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Grænásbraut 910, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
KjarniMannleg samskiptiMicrosoft ExcelSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT ehf.
ECIT ehf.

Alma íbúðafélag, þjónustufulltrúi
Alma íbúðafélag

Skrifstofustjóri
Hurðaskellir ehf.

Finance: Storekeeper
The Reykjavik EDITION

Bókhalds og skrifstofustarf.
Nautafélagið ehf.

Office Administrator
The Beluga Operating Company ehf.

Aðalbókari sveitarfélagsins Skagastrandar
Sveitarfélagið Skagaströnd

Sérfræðingur í reikningshaldi
Festi

Fulltrúi í viðskiptaþjónustu innanlands
Eimskip

Innheimtufulltrúi
Hagvangur

Bókari
DFK Endurskoðun

Sérfræðingar í bókhaldi og uppgjörum
ODT