

Sérfræðingur í reikningshaldi
Festi hf. auglýsir eftir sérfræðingi í reikningshaldi til starfa. Leitað er að öflugum og nákvæmum einstaklingi með metnað, drifkraft og sjálfstæði í vinnubrögðum sem hefur reynslu af reikningshaldi, afstemmingum og bókunum. Starfið heyrir undir fjármálasvið Festi.
Festi er eignarhaldsfélag leiðandi fyrirtækja sem gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Starfsemi móðurfélagsins snýr að fjárfestingum og stoðþjónustu við dótturfélögin, ELKO, Krónuna, N1, Lyfju, Yrki fasteignir og Bakkann vöruhótel. Hlutabréf Festi hf. eru skráð í Kauphöll Íslands og velta félagsins árið 2025 var 173 milljarðar. Starfsfólk Festi og rekstrarfélaga eru samtals um 2.800 á starfsstöðvum um allt land. Festi leggur áherslu á að skapa spennandi og líflegt starfsumhverfi þar sem hæfileikar einstaklingsins fá að njóta sín.
Helstu verkefni:
- Bankaafstemmingar hjá félögum samstæðunnar
- Bókun leigureikninga, reikninga vegna útlagðs kostnaðar og annarra sölureikninga
- Afstemmingar vegna kortasölu, lána, gjafakorta og annarra greiðslumáta
- Samskipti við færsluhirða
- Þátttaka í innleiðingu og uppfærslum viðskiptakerfa félaga samstæðunnar
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Menntunar og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi er skilyrði
- Mjög góð almenn tölvuþekking og færni til að vinna í fjárhags- og viðskiptakerfum
- Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
Nánari upplýsingar veitir Ásbjörn Guðmundsson forstöðumaður reikningshalds, [email protected].
Íslenska










