Schindler
Schindler

Skrifstofustjóri

Schindler á Íslandi óskar eftir að ráða skipulagðan, jákvæðan og ábyrgan einstaklingi í fjölbreytt starf skrifstofustjóra. Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur góða reynslu af bókhaldi og fjármálum, vill vinna nálægt rekstri og hefur áhuga á að þróast áfram í breiðu og sjálfstæðu hlutverki.

Viðkomandi kemur að daglegum rekstri fyrirtækisins, bókhaldi, fjármálum og greiningum í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, stjórnendur og samstarfsfólk á Íslandi og Norðurlöndum.

Í starfinu fær viðkomandi góða innsýn í rekstur þjónustu- og tæknifyrirtækis þar sem öryggi, gæði og traust þjónusta eru í forgrunni. Hlutverkið er breitt og hentar einstaklingi sem kann vel við sig í smærra teymi, er tilbúinn að taka ábyrgð og hefur jákvætt viðhorf til breytinga, umbóta og fjölbreyttra verkefna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með daglegum rekstri skrifstofu.
  • Umsjón með daglegu bókhaldi og fjármálatengdum verkefnum.
  • Vinna við mánaðaruppgjör, afstemmingar og fjárhagslegar skýrslur.
  • Reikningagerð, viðskiptamannabókhald og lánadrottnabókhald.
  • Aðstoð við áætlanagerð, fjárhags- og rekstrargreiningar.
  • Þátttaka í innri úttektum, eftirfylgni og regluvörslu.
  • Aðstoð við launatengd verkefni og utanumhald kostnaðar.
  • Umsjón og eftirfylgni með skattamálum, innflutningi og tengdum verkefnum.
  • Þátttaka í umbótaverkefnum, ferlaþróun og innleiðingu fjármálakerfa.
  • Samskipti og samstarf við samstarfsfólk Schindler á Norðurlöndum.
  • Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast fjármálum, rekstri og skrifstofuumsjón.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun á sviði fjármála, bókhalds, viðskiptafræði eða sambærileg reynsla.
  • Reynsla af bókhaldi, uppgjörum og almennum fjármálaverkefnum.
  • Góð þekking á bókhaldsreglum og íslensku rekstrarumhverfi.
  • Mjög góð færni í Excel og almennri tölvunotkun.
  • Reynsla af fjármála- eða bókhaldskerfum er kostur, t.d. Navision, Business Central eða sambærilegum kerfum.
  • Góð greiningarhæfni og nákvæm vinnubrögð.
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og rík ábyrgðartilfinning.
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
  • Jákvætt viðhorf til breytinga, þróunar og fjölbreyttra verkefna.

Um Schindler:

Schindler Group er eitt af leiðandi fyrirtækjum heims á sviði lyfta, rennistiga og tengdrar þjónustu. Daglega nota meira en 1,5 milljarðar manna vörur og lausnir Schindler um allan heim. Fyrirtækið var stofnað í Sviss árið 1874 og starfar í dag í yfir 100 löndum með um 70.000 starfsmenn.

Schindler á Íslandi hefur starfað hér á landi frá árinu 1963 og er hluti af alþjóðlegri samstæðu Schindler. Hjá félaginu starfar öflugt um 30 manna teymi á sviði uppsetningar, viðhalds, þjónustu og skrifstofustarfa. Starfsstöð Schindler er í Hafnarfirði, að Gjótuhrauni 4. Fyrirtækið hefur byggt upp sterka stöðu á íslenskum markaði og hefur verið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki frá upphafi.

Umsóknarfrestur er til og með 19. júlí en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt3. júlí 2026
Umsóknarfrestur19. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gjótuhraun 4, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.NavisionPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.UppgjörPathCreated with Sketch.ViðskiptafræðingurPathCreated with Sketch.Viðurkenndur bókariPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar