LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Bókari

Viltu taka þátt í að byggja upp eitt öflugasta endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtæki landsins?

LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf er nýtt fyrirtæki með háleit markmið og skýra framtíðarsýn. Fyrirtækið starfar undir vörumerki LOGOS, einnar elstu og traustustu lögmannsstofu landsins, og byggir á sömu grunngildum um heiðarleika, fagmennsku og metnað.

Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum bókara sem vill taka þátt í uppbyggingu fyrirtækisins frá upphafi. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf þar sem viðkomandi mun sinna bókhaldi fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina og vinna náið með sérfræðingum fyrirtækisins.

Framtíð fyrirtækisins verður mótuð af fólkinu sem kemur inn núna. Ef þú vilt hafa áhrif, taka ábyrgð og vera hluti af metnaðarfullri vegferð frá upphafi, þá hvetjum við þig til að sækja um.


Starfssvið:

  • Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum.
  • Dagleg færsla bókhalds og afstemmingar.
  • Vinnsla virðisaukaskatts- og staðgreiðsluskila.
  • Samskipti við viðskiptavini og ráðgjöf á sviði bókhalds.
  • Þátttaka í þróun og umbótum á verkferlum.
  • Önnur tilfallandi verkefni á sviði bókhalds og fjármála.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Löggilding úr námi viðurkennds bókara er kostur.
  • Farsæl reynsla af skilum á bókhaldsgögnum til endurskoðanda.
  • Reynsla af launavinnslu og launaútreikningum er kostur.
  • Skipulögð, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
  • Áhugi á stafrænum lausnum, sjálfvirkni ferla og hagnýtingu nýrrar tækni.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og jákvætt viðmót.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð þekking og reynsla af vinnu við Excel og viðskiptahugbúnað.
  • Áhugi á að starfa í kraftmiklu og ört vaxandi umhverfi.


Hvers vegna LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf:

  • Þú færð tækifæri til að móta nýtt fyrirtæki með skýra sýn og stór markmið.
  • Rík tækifæri til starfsþróunar og markviss símenntun.
  • Þú starfar í kraftmiklu umhverfi þar sem góðar hugmyndir fá að verða að veruleika.
  • Þú vinnur með metnaðarfullu fólki sem leggur áherslu á fagmennsku, samvinnu og árangur.
  • Þú nýtur sveigjanleika, trausts og ábyrgðar í starfi.
  • Þú færð samkeppnishæf launakjör.



LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf er nýtt og metnaðarfullt fyrirtæki á sviði endurskoðunar, reikningsskila og ráðgjafar. Fyrirtækið starfar undir vörumerki LOGOS, einnar elstu og virtustu lögmannsstofu landsins, og byggir á sterkum grunni heiðarleika, fagmennsku og metnaðar.

Okkar markmið er að skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini. Við tökum starf okkar alvarlega, góð ráðgjöf snýst um að skilja rekstur, greina tækifæri og ráðleggja viðskiptavinum um þeirra bestu ákvarðanir. Sú vinna skilar sér í skýrari yfirsýn, markvissari ákvarðanatöku og sterkari rekstri þeirra viðskiptavina sem við störfum með. Við veitum fyrirtækjum og stofnunum heildstæða og virðisaukandi þjónustu sem styður við upplýsta ákvarðanatöku, aukið gagnsæi og árangursríkan rekstur.

Framundan er spennandi uppbygging og vöxtur. Hjá LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf gefst starfsfólki einstakt tækifæri til að hafa áhrif, taka þátt í að móta starfsemina og vaxa með fyrirtæki sem stefnir að því að verða leiðandi á sínu sviði.

www.logosadvisory.is


Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí nk.

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 5, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar