Sensa ehf.
Sensa ehf.
Sensa ehf.

Sérfræðingur á mannauðssviði

Sensa leitar að reynslumiklum og öflugum mannauðsráðgjafa sem vill hafa áhrif, taka ábyrgð og hjálpa okkur að byggja upp enn betri vinnustað.

Við leitum að einstaklingi sem er sjálfstæður í vinnubrögðum, hefur sterka faglega dómgreind og getur stutt stjórnendur og starfsfólk af öryggi í daglegum mannauðsmálum.

Sensa er alþjóðlegt 120 manna þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í upplýsingatækni á fyrirtækjamarkaði.

Við erum öflugt teymi sérfræðinga sem styðjum hvert annað og vinnum saman. Við leggjum mikla áherslu á góðan starfsanda, sveigjanleika og að starfsfólk hafi svigrúm til að þróast í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með ráðningum og móttöku nýs starfsfólks
  • Túlkun og eftirfylgni með kjarasamningum, vinnulöggjöf og réttindum starfsfólks
  • Þátttaka í þróun og umbótum á mannauðsferlum og starfsumhverfi
  • Stuðningur við frammistöðu-, þróunar- og fræðslumál
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur í mannauðsmálum
  • Úrvinnsla og eftirfylgni ýmissa starfsmannamála
  • Þátttaka í verkefnum sem styðja við menningu, vellíðan og árangur starfsfólks
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Starfsreynsla á sviði mannauðsmála
  • Góð þekking á vinnurétti, kjarasamningum og réttindum starfsfólks
  • Sjálfstæði, frumkvæði og fagleg dómgreind
  • Drifkraftur, skipulagshæfni og geta til að ljúka verkefnum
  • Framúrskarandi samskiptafærni og sterk þjónustulund
  • Fagmennska, sterk ábyrgðarkennd og trúnaður í starfi
  • Reynsla af launavinnslu er kostur, en ekki skilyrði
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa annan ferðamáta en einkabílinn 
  • Heilsueflingarstyrkur
  • Hjólageymsla, líkamsræktar- og sturtuaðstaða 
  • Fyrsta flokks mötuneyti 
  • Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur28. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.RáðningarPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar