Samtök Verslunar og þjónustu
Samtök Verslunar og þjónustu
Samtök Verslunar og þjónustu

Vilt þú taka þátt í að efla stöðu fyrirtækja á sviði verslunar og þjónustu?

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu leita að drífandi og skipulagðri manneskju í nýtt starf verkefna- og tengslastjóra.

Við leitum að röskum einstaklingi sem hefur ánægju af því að vinna að fjölbreyttum verkefnum, tengja fólk saman, fylgja málum eftir og skapa flæði milli hópa fyrirtækja, sérfræðinga og stjórnenda, einstaklingi sem áttar sig á mikilvægi þess að góð samvinna, skýr upplýsingagjöf og öflug eftirfylgni geti skilað íslensku atvinnulífi árangri.

Starfið felst í að styðja við málefnastarf SVÞ, halda utan um fjölbreytta fundi og verkefni og hjálpa til við að tryggja að mikilvægt starf starfsgreinasamtaka og faghópa verði skilvirkara svo gagnist SVÞ og aðildarfyrirtækjum bæði inn á við og út á við.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst/september næstkomandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Halda úti reglulegum fundum faghópa og sérgreinafélaga innan SVÞ.
  • Skipuleggja fundi, útbúa dagskrár og tryggja gott upplýsingaflæði.
  • Rita fundargerðir og fylgja eftir verkefnum og ákvörðunum.
  • Samhæfa aðkomu sérfræðinga og stjórnanda SVÞ að verkefnum og fundum.
  • Halda utan um verkefnalista, tímalínur og stöðu aðgerða.
  • Byggja góð tengsl við fulltrúa aðildarfyrirtækja og stuðla að öflugri samvinnu.
  • Koma auga á verkefni, málefni og árangur sem vert er að miðla áfram og gera sýnilegri.
  • Styðja við upplýsingagjöf og miðlun verkefna í samstarfi við markaðs- og kynningarstjóra.
  • Aðstoða við skipulagningu viðburða, funda og aðalfunda SVÞ, hópa og starfsgreinafélaga. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Það er kostur ef þú hefur reynslu af störfum á sviði verslunar og þjónustu. 
  • Það er kostur ef þú hefur reynslu af verkefnastjórnun, fundastjórnun eða samskiptastarfi.
  • Það er kostur ef þú hefur menntun á sviði viðskiptafræði, stjórnmálafræði, verkefnastjórnunar eða á öðru sviði sem gagnast í starfi. 
  • Það er kostur ef þú hefur reynslu af samstarfi við ólíka hagsmunaaðila. 
  • Það er kostur ef þú hefur reynslu af miðlun efnis eða upplýsingastjórnun. 
Fríðindi í starfi
  • Vandað vinnuumhverfi.
  • Góður starfsandi og stuðningur innan teymisins.
  • Niðurgreiddur hádegisverður.
  • Íþróttastyrkur.
Af hverju SVÞ?

Hjá SVÞ færð þú tækifæri til að vinna með fjölbreyttum fyrirtækjum og öflugu teymi sem hefur raunveruleg áhrif á íslenskt atvinnulíf. Við leggjum áherslu á samstarf, fagmennsku, frumkvæði og jákvætt vinnuumhverfi þar sem hugmyndir og fólk fá að njóta sín.

Ef þú hefur ánægju af því að skapa flæði, halda utan um verkefni og koma góðum hugmyndum og mikilvægu starfi að til skila – þá viljum við heyra frá þér.

Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur1. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
DanskaDanska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 35, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar