
Verkefnasafnsstjóri (e. portfolio manager) hjá Stafrænni heilsu
Stafræn heilsa er ný eining sem leiðir þróun stafrænnar heilbrigðisþjónustu á Íslandi og veitir framúrskarandi þjónustu við heilbrigðisstofnanir. Nú stendur yfir uppbygging einingarinnar og samhæfing stafrænnar þróunar á landsvísu, og leitað er að verkefnasafnsstjóra (e. portfolio manager) til að halda utan um yfirsýn yfir verkefni á landsvísu. Starfið heyrir undir forstöðumann Stafrænnar heilsu.
Hjá Stafrænni heilsu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði upplýsinga- og heilbrigðistækni að margvíslegum og spennandi verkefnum.
Verkefnasafnsstjóri annast yfirumsjón stafrænna heilbrigðisverkefna á landsvísu, fylgist með framvindu þeirra og tryggir gagnsæi og rekjanleika í verkefnastýringu. Starfið felur m.a. í sér að þróa og reka miðlæga verkefnagátt, styðja verkefnastjóra í daglegum störfum með samræmdri aðferðafræði og útbúa stöðuyfirlit og greiningar sem nýtast við forgangsröðun og ákvarðanatöku. Áhersla er á samræmd vinnubrögð, skýra framsetningu upplýsinga og náið samstarf þvert á verkefni og stofnanir.
Um er að ræða lykilhlutverk í uppbyggingu nýrrar einingar þar sem verkefnastýring og yfirsýn á landsvísu eru í mótun. Verkefnin eru fjölbreytt og starfið krefst nákvæmni, frumkvæðis, útsjónarsemi og úrræðagetu til að halda utan um mörg verkefni samtímis í flóknu umhverfi. Verkefnasafnsstjóri starfar í nánu samstarfi við verkefnastjóra, forstöðumann og aðra sérfræðinga.
-
Halda utan um, þróa og reka miðlæga, samtengda verkefnagátt einingarinnar.
-
Tryggja yfirsýn yfir öll stafræn heilbrigðisverkefni á landsvísu, þ.m.t. framvindu, fjármögnun og tengsl milli verkefna.
-
Styðja verkefnastjóra í daglegum störfum aðferðafræði verkefnastjórnunar.
-
Vinna stöðuskýrslur, mælaborð og greiningar fyrir stjórnendur og til samráðs.
-
Styðja við samræmda forgangsröðun verkefna í samvinnu við stjórnendur og hagaðila.
-
Þróa og viðhalda verkferlum og aðferðafræði verkefnastjórnunar innan einingarinnar.
-
Eiga samstarf við heilbrigðisstofnanir um skráningu og yfirsýn verkefna.
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur.
-
Reynsla af verkefnastjórnun og verkefnasafnsstýringu (e. portfolio management) er nauðsynleg.
-
Þekking á aðferðafræði og verkfærum verkefnastjórnunar er nauðsynleg.
-
Skipulögð og öguð vinnubrögð, nákvæmni og geta til að halda yfirsýn yfir mörg verkefni samtímis.
-
Greiningarhæfni og hæfni til að setja flóknar upplýsingar fram á skýran og aðgengilegan hátt.
-
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
-
Þekking eða reynsla úr heilbrigðis- eða upplýsingatækni er kostur.
-
Drifkraftur, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
-
Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Íslenska
Enska







