
Nýsköpunarstjóri - Stafræn heilsa
Nýsköpunarstjóri hjá Stafrænni heilsu
Stafræn heilsa er ný miðlæg eining sem leiðir þróun stafrænnar heilbrigðisþjónustu á Íslandi og styður við heilbrigðisstofnanir. Hjá Stafrænni heilsu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði upplýsinga- og heilbrigðistækni að margvíslegum og spennandi verkefnum. Unnið er að uppbyggingu nýsköpunarumhverfis á landsvísu í samstarfi við nýsköpunaraðila, og leitað er að nýsköpunarstjóra til að móta og leiða það starf. Starfið heyrir beint undir forstöðumann Stafrænnar heilsu.
Nýsköpunarstjóri ber ábyrgð á nýsköpunarstarfi sem styður við breytingar með nýrri tækni, gagnadrifnum lausnum og aukinni sjálfvirkni. Starfið felur í sér að virkja hugmyndir, styðja við þróunarverkefni og greiða leið nýrra lausna inn í heilbrigðisþjónustu, í nánu samstarfi við sérfræðinga í heilbrigðisráðuneytinu, heilbrigðisstofnanir, þróunaraðila og nýsköpunarsamfélagið.
Um er að ræða lykilhlutverk í uppbyggingu nýrrar einingar. Verkefnin eru fjölbreytt, krefjandi og kalla á stefnumótandi hugsun, frumkvæði og hæfni til að miðla lausnum í framkvæmd í flóknu umhverfi. Nýsköpunarstjóri ber ábyrgð á nýsköpunarstarfi einingarinnar og starfar í nánu samstarfi við forstöðumann og aðra stjórnendur að mótun og framgangi verkefna.
-
Leiða og móta stefnu um nýsköpun í stafrænum heilbrigðislausnum.
-
Byggja upp og þróa nýsköpunarumhverfi, m.a. prófunarumhverfi (¿sandkassa"), innleiðingarferla og árangursmat fyrir nýjar lausnir.
-
Styðja við og fylgja eftir nýsköpunar- og þróunarverkefnum í samstarfi við heilbrigðisstofnanir og aðra hagaðila.
-
Meta og forgangsraða nýjum hugmyndum og lausnum í samvinnu við klíníska ábyrgðaraðila með það að markmiði að þær nýtist í starfsemi.
-
Rækta tengsl við innlenda og erlenda samstarfsaðila á sviði nýsköpunar.
-
Taka þátt í að skýra regluverk og kröfur sem gerðar eru til nýsköpunaraðila í heilbrigðisþjónustu.
-
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar.
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
-
Reynsla af nýsköpunarstarfi, þróunarverkefnum eða stafrænum umbreytingum.
-
Þekking á upplýsingatækni, gagna- og hugbúnaðarþróun æskileg.
-
Þekking og reynsla úr heilbrigðisgeiranum æskileg.
-
Reynsla af samstarfi við fjölbreytta hagaðila, t.d. opinbera aðila og einkageira.
-
Faglegur metnaður og öguð vinnubrögð.
-
Drifkraftur, stefnumótandi hugsun og frumkvæði í starfi.
-
Hæfni til að móta jákvætt vinnuumhverfi og byggja upp teymi.
-
Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og á riti.
Íslenska
Enska










