

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Vilt þú leiða ört vaxandi sveitarfélag inn í framtíðina?
Suðurnesjabær leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga til að gegna starfi bæjarstjóra.
Bæjarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri sveitarfélagsins og vinnur náið með bæjarstjórn, starfsfólki, íbúum og hagsmunaaðilum að áframhaldandi uppbyggingu og þróun samfélagsins. Leitað er að drífandi leiðtoga sem hefur getu til að efla samheldni, styrkja sveitarfélagið enn frekar og skapa traust samstarf milli íbúa, starfsfólks og kjörinna fulltrúa.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á daglegum rekstri, stjórnun og fjármálum Suðurnesjabæjar í samræmi við stefnu bæjarstjórnar.
- Vinna að stefnu og framtíðarsýn í málefnum Suðurnesjabæjar.
- Ábyrgð á mannauðsmálum og jákvæðri vinnustaðamenningu.
- Undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda.
- Tryggja skilvirka og góða þjónustu við íbúa.
- Efla samstarf við atvinnulíf, stofnanir, ríki og önnur sveitarfélög.
- Koma fram fyrir hönd Suðurnesjabæjar og gæta hagsmuna sveitarfélagsins á opinberum vettvangi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Umfangsmikil reynsla af stjórnun og leiðtogastörfum.
- Reynsla af rekstri, fjármálastjórnun og stefnumótun.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum.
- Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni.
- Reynsla af breytingastjórnun og að leiða fólk saman.
- Hæfni til að skapa traust og vinna með ólík sjónarmið.
- Framsýni, metnaður og frumkvæði.
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Um Suðurnesjabæ
Suðurnesjabær er næstfjölmennasta sveitarfélagið á Suðurnesjum með rúmlega 4200 íbúa. Mikil uppbygging og gróska er í sveitarfélaginu, m.a. er lítur að uppbyggingu nýrra hverfa og miklum möguleikum til atvinnuuppbyggingar. Í Suðurnesjabæ eru tveir grunnskólar, tvær íþróttamiðstöðvar og sundlaugar, bóka- og byggðasafn og Þekkingarsetur. Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag sem býður uppá nálægð við náttúruna og einstaka strandlengju sem umvefur sveitarfélagið.
Frekari upplýsingar um Suðurnesjabæ má finna á www.sudurnesjabaer.is.
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]).
Íslenska
Enska










