

Forstöðumaður reksturs og þjónustu - Bakkinn Vöruhótel
Bakkinn Vöruhótel er í eigu Festi og gegnir mikilvægu hlutverki í að tryggja skilvirka vöruhúsaþjónustu og vörudreifingu fyrir dótturfélög samstæðunnar, þar á meðal Krónunnar, ELKO og N1.
Við leitum að metnaðarfullum og öflugum rekstrarstjóra sem hefur sterka yfirsýn yfir rekstur og þjónustu. Er gagnadrifinn og hefur hæfni til að byggja upp stjórnendateymi með skýra stefnu, markmið og veitir stuðning til að ná árangri.
Rekstrarstjóri ber ábyrgð á stöðugum umbótum, innleiðingu nýrra lausna og þróun starfseminnar til framtíðar.
Í starfinu gefst einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun fyrirtækis sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu, stöðugar umbætur og nýtingu tækni til að skapa betri lausnir fyrir viðskiptavini sína.
Rekstur
- Hefur sterka yfirsýn yfir rekstur, þjónustu og starfsfólk
- Vinnur markvisst út frá lykilmælikvörðum og skýrum markmiðum
- Hugsar fram í tímann og leiðir umbætur og þróun rekstrarins
- Tryggir að þjónustuloforð við viðskiptavini standist
Greiningarhæfni
- Vinnur auðveldlega með gögn og rekstrarupplýsingar
- Nýtir mælikvarða til að auka árangur, hagkvæmni og þjónustugæði
Leiðtogahæfni
- Hefur glöggt auga fyrir starfsfólki, frammistöðu og liðsheild
- Byggir upp jákvæða vinnustaðamenningu sem einkennist af ábyrgð og þátttöku
- Er sýnilegur, aðgengilegur og traustur leiðtogi
- Hefur reynslu af mönnun, þjálfun og þróun starfsfólks
Samningafærni
- Býr yfir sterkri hæfni í mannlegum samskiptum
- Getur leitt samningaviðræður af festu og lausnamiðaðri nálgun
- Reynsla af stjórnun rekstrar- eða þjónustueiningar.
- Þekking og reynsla af vöruhúsa rekstri, vöruflæði, dreifingu eða annarri sambærilegri starfsemi er kostur.
- Reynsla af áætlanagerð, kostnaðarstýringu og eftirfylgni með rekstrarmarkmiðum.
- Hæfni til að leiða breytingar, þróunarverkefni og umbætur í rekstri.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Mjög góð samskiptafærni og reynsla af samstarfi þvert á deildir.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Aðgangur að Velferðarþjónustu Bakkans
- Afsláttarkjör hjá Elko, Lyfju, Krónunni og N1
- Styrkur til heilsueflingar
Enska
Íslenska







