Eimskip
Eimskip
Eimskip

Rekstrarstjóri aksturs landsbyggðar

Eimskip leitar að öflugum rekstrarstjóra til að leiða og þróa akstur og vöruflutninga á landsbyggðinni. Um er að ræða lykilstöðu þar sem þú berð ábyrgð á rekstri, verklagi og árangri landsbyggðar aksturs. Starfið felur í sér að leiða starfsemina í nánu samstarfi við teymi akstursstjóra með áherslu á hagkvæmni, framúrskarandi þjónustu og stöðugar umbætur.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með akstri og vöruflutningum á landsbyggðinni
  • Tryggja að akstur sé framkvæmdur á hagkvæman og skilvirkan hátt
  • Styðja akstursstjóra í ákvarðanatöku og forgangsröðun
  • Leiða þróun og innleiðingu á samræmdum verkferlum milli svæða
  • Eftirfylgni með rekstrarárangri og greining lykiltalna (t.d. nýting, afköst og kostnaður)
  • Ábyrgð á verktakakostnaði, samningum og samskiptum við verktaka
  • Yfirferð og samþykkt reikninga
  • Eftirlit með þjónustugæðum, greining frávika og innleiðing umbóta
  • Samstarf við söludeild, svæðisstjóra og tækjastjóra um rekstur, verkefni og þróun

Þú vinnur náið með:

Forstöðumanni aksturs, svæðisstjórum, akstursstjórum, verktökum og öðrum lykilstjórnendum innanlandssviðs.

Hverju leitum við að:

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur reynslu af stjórnun eða leiðtogahlutverki í rekstri
  • Vinnur sjálfstætt og sýnir frumkvæði
  • Hefur hæfni til að leiða aðra, fylgja eftir árangri og taka skýrar ákvarðanir í krefjandi aðstæðum
  • Býr yfir góðri greiningarfærni og talnalæsi
  • Hefur reynslu af rekstrareftirfylgni, kostnaðarstýringu og umbótastarfi
  • Hefur sterka samskipta- og leiðtogahæfni
  • Hefur reynslu af rekstri vörubíla eða sambærilegri starfsemi (kostur)
  • Hefur góða tölvukunnáttu
  • Hefur menntun sem nýtist í starfi (kostur)
  • Hefur góða íslensku- og enskukunnáttu

Hvað bjóðum við?

  • Fjölbreytt verkefni og góðan starfsanda í samhentu teymi þar sem áhersla er á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks.
  • Öflugt starfsmannafélag og aðgang að orlofshúsum víðs vegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakka sem m.a. inniheldur samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk, styrk fyrir sálfræðiþjónustu og krabbameinsskoðun
  • Aðgang að góðu mötuneyti með niðurgreiddum mat
  • Farsímaáskrift og nettengingu heima
  • Nútímalega vinnuaðstöðu og sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi

Hvers vegna þessi staða?

Í þessu hlutverki hefur þú raunveruleg áhrif á daglegan rekstur, þróun ferla og þjónustustig um allt land. Þú færð tækifæri til að móta starfsemi sem skiptir lykilmáli í flutningakeðju Eimskips.

Auglýsing birt3. júní 2026
Umsóknarfrestur14. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar