
RæstiTækni
RæstiTækni hefur starfað frá árinu 2002 og felst meginstarfsemi fyrirtækisins í þjónustu við fyrirtæki, stofnanir og húsfélög. Við sjáum um ýmis sérverkefni eins og hreingerningar, þrif eftir framkvæmdir, bón á gólfdúkum, teppahreinsun. Ræstitækni rekur einnig stóra gluggaþvotta deild og á þrjá körfubíla til að auðvelda verkið.
Ræstitækni leggur metnað sinn í að bjóða upp á vandaða þjónustu á sem flestum sviðum og sér um heildarumsjón með ræstingu.

Ræstitækni leitar að öflugum verkstjóra
Viltu leiða öflugt teymi og hafa áhrif á gæði þjónustu hjá traustu og vaxandi fyrirtæki ?
Ræstitækni leitar að drífandi, skipulögðum og metnaðarfullum verkstjóra til að stýra daglegum verkefnum í ræstingum og tryggja framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini okkar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni
- Umsjón og stjórnun ræstingarverkefna
- Skipulagning og eftirfylgni með nýjum verkefnum
- Stjórnun og stuðningur við starfsfólk í almennum ræstingum sem og sérverkefnum
- Gæðaeftirlit og samskipti við viðskiptavini á verkstað
- Þjálfun og leiðsögn starfsmanna
- Eftirfylgni með verkferlum og þjónustugæðum
- Teymisvinna með starfsfólki á skrifstofu
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur góða leiðtogahæfileika og reynslu af mannaforráðum
- Býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni
- Er sjálfstæður, skipulagður og lausnamiðaður
- Er stundvís og áreiðanlegur
- Sýnir frumkvæði og hefur sterkan drifkraft
- Er talnaglöggur og hefur góða kunnáttu í Excel og öðrum helstu tölvukerfum
- Hefur reynslu af störfum við ræstingar, í ræstingargeiranum eða sambærilegum rekstri
- Er með bílpróf og hreint sakavottorð
- Getur tjáð sig á íslensku eða ensku
- Spænskukunnátta er kostur
Fríðindi í starfi
Við bjóðum:
- Fjölbreytt og krefjandi starf
- Góðan starfsanda og öflugt teymi
- Sterka liðsheild þar sem teymisvinna og samvinna eru í fyrirrúmi
- Tækifæri til að hafa áhrif og þróast í starfi
- Tækifæri til að taka þátt í þróun nýrra tæknilausna
- Framsækið fyrirtæki sem leggur áherslu á nýsköpun, stöðuga þróun og betri verkferla
- Starf hjá traustu fyrirtæki með sterka stöðu á markaði
- Fullt starf með fastri yfirvinnu og góðum tekjumöguleikum
- Morgunverð fyrir starfsfólk
- Öflugt starfsmannafélag
- Við hættum á hádegi á föstudögum
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur19. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Nýbýlavegur 32, 200 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)





