
Vinnumálastofnun
Hlutverk Vinnumálastofnunar
Vinnumálastofnun heyrir undir félagsmálráðuneytið og fer m.a. með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu Atvinnuleysistryggingasjóðs, Fæðingarorlofssjóðs, Ábyrgðarsjóðs launa auk fjölmargra annara vinnumarkaðstengdra verkefna.
Forstöðumaður þjónustuskrifstofu á Suðurlandi
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða forstöðumann þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurlandi. Forstöðumaður þjónustuskrifstofunnar er staðsettur á Selfossi.
Þjónustusvæði skrifstofunnar nær frá Hellisheiðarvirkjun að Hornafirði.
Forstöðumaður ber ábyrgð á og annast daglegan rekstur, stjórn og framkvæmd verkefna þjónustuskrifstofunnar.
Meðal verkefna þjónustuskrifstofunnar eru ráðgjöf og þjónusta við atvinnuleitendur, atvinnu með stuðningi, flóttamenn, atvinnurekendur og aðra hagsmunaaðila á svæðinu.
Forstöðumaður heyrir undir sviðsstjóra þjónustusviðs Vinnumálastofnunar.
Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á rekstri þjónustuskrifstofunnar.
- Ber ábyrgð á stjórnun og starfsmannahaldi þjónustuskrifstofunnar.
- Tekur þátt í öllum daglegum verkefnum þjónustuskrifstofunnar eftir þörfum.
- Fylgist með árangri þjónustunnar og stuðlar að framþróun hennar.
- Byggir upp og viðheldur samskipti við hagaðila s.s. félagsþjónustur, atvinnulíf á svæðinu og fræðsluaðila.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Stjórnendamenntun og stjórnendareynsla er kostur.
- Stjórnunarhæfni.
- Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
- Þekking á félagsþjónustu sveitarfélaga er kostur.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og metnaður í starfi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Stafræn færni til að nýta við framkvæmd og framþróun þjónustuskrifstofunnar er æskileg.
Auglýsing birt27. maí 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Austurvegur 64, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
