
Grindavíkurbær
Grindavík er öflugt og samheldið samfélag sem hefur á undanförnum misserum staðið frammi fyrir krefjandi aðstæðum vegna jarðhræringa. Sveitarfélagið vinnur markvisst að enduruppbyggingu með áherslu á öryggi, velferð íbúa og sterka innviði til framtíðar.
Grindavík hefur verið einn öflugasti útgerðarbær landsins með kraftmiklum og vel reknum útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum, og ferðaþjónusta hefur þróast hratt með Bláa lónið sem einn fjölsóttasta áfangastað landsins í næsta nágrenni.
Samfélagið leggur ríka áherslu á fjölskyldugildi, öflugt íþróttastarf og góða þjónustu við íbúa. Náttúra svæðisins er sérstök og fjölbreytt, með stutt í gönguleiðir og vinsælan 18 holu golfvöll. Grindavík byggir á sterkum grunni og miklum vilja til að þróa áfram kraftmikið og sjálfbært samfélag til framtíðar.
Bæjarstjóri
Grindavík hefur á undanförnum misserum tekist á við fordæmalausar aðstæður sem kallað hafa á skýra forystu og samheldni. Bæjarstjóri gegnir lykilhlutverki í endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur í nánu samstarfi við bæjarstjórn, starfsfólk, íbúa, atvinnulíf og stjórnvöld. Framundan er mikilvægt tímabil þar sem áhersla er lögð á enduruppbyggingu samfélagsins, styrkingu þjónustu og innviða og áframhaldandi þróun öflugs atvinnulífs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun og rekstur Grindavíkurbæjar
- Framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og stefnumótun í samstarfi við kjörna fulltrúa
- Forysta í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins og þjónustu við íbúa
- Ábyrgð á fjárhagsáætlun, áætlanagerð og eftirfylgni
- Mannauðsstjórnun og áframhaldandi uppbygging öflugrar stjórnsýslu
- Samskipti við íbúa, atvinnulíf, stjórnvöld og samstarfsaðila
- Undirbúningur funda bæjarstjórnar og nefnda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
- Reynsla af stefnumótun og flóknum breytingaferlum
- Stefnumótandi hugsun og áhugi á uppbyggingu samfélagsins
- Seigla og hæfni til að vinna undir álagi og stýra flóknum verkefnum af fagmennsku
Auglýsing birt4. júní 2026
Umsóknarfrestur18. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Víkurbraut 62, 240 Grindavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður reksturs og þjónustu - Bakkinn Vöruhótel
Bakkinn vöruhótel

Seltjarnarnesbær - Deildarstjóri reikningshalds
Seltjarnarnesbær

Velferðarsvið - Ráðgjafi
Reykjanesbær

Framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs (Supply Chain Operations)
Coripharma ehf.

Framkvæmdastjóri – Ofar
Ofar

Rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Hafnarfirði
Húsasmiðjan

Starf forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Heilbrigðisráðuneytið

Ræstitækni leitar að öflugum verkstjóra/Ræstitækni seeks an operations manager
RæstiTækni

Rekstrarstjóri aksturs landsbyggðar
Eimskip

Framkvæmdastjóri Háskóla Íslands
Háskóli Íslands

Sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs
Sólar

Sveitarstjóri
Sveitarfélagið Strandabyggð