Seltjarnarnesbær
Seltjarnarnesbær
Seltjarnarnesbær

Seltjarnarnesbær - Deildarstjóri reikningshalds

Við leitum að starfsmanni sem hefur metnað til að ná árangri, vinnur sjálfstætt og býr yfir góðri samskiptahæfni. Ef þú hefur gaman af því að vinna með fólki og vilt taka þátt í að skapa jákvæð áhrif í öflugu teymi, þá er þetta starf fyrir þig.

Um fullt starf er að ræða á fjármálasviði sem starfar þvert á önnur svið bæjarins. Fjármálasvið sinnir m.a., reikningshaldi, fjárhagsáætlun, fjárstýringu, launavinnslu, innheimtu og fleira.

Deildarstjóri reikningshalds ber ábyrgð á bókhaldi Seltjarnarnesbæjar, stýrir bókhaldsvinnu sveitarfélagsins, gerð uppgjörs, þróun verkferla og stýringu fjárhagsupplýsingakerfa. Fjárhagskerfi Seltjarnarnesbæjar er Microsoft Dynamics 365 Business Central.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með öllu bókhaldi Seltjarnarnesbæjar og stofnana bæjarins, eignakerfi, afstemmingu og annarri bókhaldsvinnu
  • Ábyrgð á skipulagi bókhalds og að vinnubrögð séu í samræmi við lög og viðurkenndar reikningsskilareglur
  • Ábyrgð og umsjón með gerð árshlutauppgjöra og ársreikninga Seltjarnarnesbæjar og undirfyrirtækja
  • Yfirumsjón með virðisaukaskattsmálum
  • Þátttaka í fjárhagsáætlanagerð og innra eftirliti
  • Ýmis uppgjörs- og greiningarvinna
  • Samskipti við endurskoðendur vegna ársreiknings
  • Yfirumsjón með skráningu reikninga og samþykktum þeirra
  • Ráðgjöf og stuðningur við notendur fjárhagskerfis
  • Ábyrgð á stofnun notenda og aðgangsstýringu í BC
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi á sviði endurskoðunar, fjármála eða skyldum greinum
  • Meistarapróf í reikningsskilum og endurskoðun er æskilegt
  • Þekking og reynsla á færslu, skipulagningu og uppgjöri bókhalds er skilyrði
  • Þekking á lögum og reglum um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga ásamt lögum um virðisaukaskatt er mikilvæg
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Góð tölvukunnátta og færni í Excel er skilyrði
  • Góð þekking og reynsla af Business Central (BC) er kostur
  • Rík þjónustulund, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
  • Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
Auglýsing birt4. júní 2026
Umsóknarfrestur18. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Löggiltur endurskoðandiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SjóðsstreymiPathCreated with Sketch.UppgjörPathCreated with Sketch.Viðskiptafræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar