Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Sérfræðingur í kostnaðarstýringu

Við hjá Landsvirkjun vinnum að því að tryggja sjálfbæra og örugga orkuvinnslu framtíðarinnar. Við leitum að sérfræðingi til að taka virkan þátt í að efla kostnaðarstýringu og yfirsýn í fjölmörgum framkvæmdaverkefnum okkar, og nýta tækni í auknum mæli við gagnadrifna ákvörðunartöku.

Í þessu starfi færð þú tækifæri til að vinna þvert á teymi og deildir, í nánu samstarfi við verkefnastjóra framkvæmdasviðs. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og krefst lipurðar í samskiptum, greiningarhæfni og lausnamiðaðrar nálgunar. Þú leiðir vinnu við að samræma og staðla vinnubrögð og tekur þátt í að innleiða verklag sem stuðlar að aukinni yfirsýn, skilvirkni og hagkvæmni í framkvæmdum.

Við hverju má búast?

  • Umsjón með aðferðafræði kostnaðarstýringar við undirbúning og rekstur framkvæmdaverkefna
  • Stuðningi við verkefnastjóra tengt kostnaðareftirliti og áætlunum framkvæmdaverkefna
  • Þróun á gagnavistun, -vinnslu og upplýsingagjöf sem styður við skilvirkari ákvörðunartöku
  • Skilgreiningu árangursmælikvarða í kostnaðarstýringu og eftirfylgni þeirra
  • Umsjón með þróun og innleiðingu tækni fyrir kostnaðareftirlit

Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu sem nýtist í starfi?

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, fjármál eða endurskoðun
  • Reynsla af kostnaðarstýringu kemur að góðum notum
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
  • Færni í upplýsingatækni og gagnagreiningu er nauðsynleg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna þvert á teymi og deildir

Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?

Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Sem hluti af teymi okkar færðu tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum í orkugeiranum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.

Hljómar þetta spennandi?

Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu. Fyrirspurnir má senda á netfangið [email protected].

Auglýsing birt28. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar