

Sérfræðingur stíflueftirlits
Gætir þú gætt að stíflum?
Við hjá Landsvirkjun leitum að sérfræðingi í stíflueftirliti. Það felur í sér ábyrgð á umsjón mæligagna og greiningu og þróun eftirlitskerfa. Starfið er á sviði vatnsafls og því fylgir bæði fagleg ábyrgð og samvinna, þar sem sérfræðingurinn stýrir ráðgjöfum, tekur þátt í öryggisúttektum og tryggir að viðvörunarkerfi okkar séu ávallt í fremstu röð. Sérfræðingur í stíflueftirliti verður hluti af framsæknu teymi sérfræðinga þar sem sjálfbærni, öryggi og vellíðan eru í fyrirrúmi.
Við hverju má búast?
- Að hafa umsjón með mæligögnum og mælikerfum stíflueftirlits.
- Að greina og túlka gögn frá mælitækjum, landmælingum og öðru eftirliti.
- Að þróa og viðhalda sjálfvirkum eftirlits- og viðvörunarkerfum.
- Að taka þátt í stífluöryggisskoðunum og -úttektum.
- Að stýra ráðgjöfum og verkefnum tengdum mælitækjum og eftirlitskerfum.
Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu?
- Meistaragráðu í byggingarverkfræði, jarðeðlisfræði, jarðfræði eða skyldri grein (æskilegt).
- Reynslu af stíflueftirliti, mælitækjum, gagnagreiningu eða stífluöryggi (kostur).
- Framúrskarandi samskiptahæfni og getu til að vinna í teymi.
- Umbótahugsun, jákvæðni og framsýni.
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?
Landsvirkjun er vinnustaður þar sem öryggi og vellíðan starfsfólks er í forgangi. Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Þú færð tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi og menningu, þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu.
Íslenska



