Yrkir eignir ehf.
Yrkir eignir ehf.
Yrkir eignir ehf.

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild

Viltu stýra fjölbreyttum framkvæmdaverkefnum um allt land?

Yrkir ehf. leitar að öflugum verkefnastjóra til að leiða nýframkvæmdir, breytingar og viðhaldsverkefni fyrir félög Festi samstæðunnar. Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi með reynslu af stjórnun og eftirfylgni framkvæmda- og viðhaldsverkefna.

Starfið felst m.a. í að halda utan um og fylgja eftir stærri framkvæmdaverkefnum sem og viðhalds- og breytingaverkefnum á vegum félaga innan samstæðu Festi hf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón, eftirlit og eftirfylgni með nýframkvæmdum sem og verkefnum sem snúa að breytingum á fasteignum og rekstrareiningum félaga samstæðunar.

  • Gerð kostnaðar- verk- og framkvæmdaáætlana og uppgjör verkefna.

  • Aðkoma að undirbúningi og áætlanagerð fyrir viðhaldsverkefni.

  • Innkaup og fjárfesting á rekstrartengdum búnaði fyrir rekstrafélög samstæðunar.

  • Eftirlit og umsjón með  framkvæmdum, eftirlit með að þau séu unnin í samræmi við samþykkt gögn, svo sem hönnunargögn, kostnaðar- og tímaáætlanir.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verkefnastjórn, ástandsgreiningu, gerð verk- og kostnaðaráætlana.
  • Reynsla af skipulagningu, umsjón og eftirliti með verklegum framkvæmdum er nauðsynleg.
  • Verkfræði-, tæknifræði- eða byggingafræðimenntun æskileg.
  • Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð.
  • Góð samskiptahæfni, þjónustulund og geta unnið í teymi.
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
Auglýsing birt13. október 2026
Umsóknarfrestur10. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.IðnfræðingurPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.VerkfræðingurPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar