Landsbankinn
Landsbankinn
Landsbankinn

Sérfræðingur - Fyrirtækjaráðgjöf

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans leitar að nýjum liðsmanni í öflugan hóp sérfræðinga. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni á fjármálamarkaði.

Fyrirtækjaráðgjöf sinnir fjölbreyttum verkefnum sem eiga það sammerkt að tengjast umbreytingu og þróun fyrirtækja. Helstu verkefni deildarinnar eru ráðgjöf við kaup og sölu fyrirtækja, umsjón með útboðum og skráningum á hlutabréfum og skuldabréfum í Kauphöll, ráðgjöf við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og ráðgjöf við fjármögnun fyrirtækja og verkefna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verðmat og greining á fyrirtækjum
  • Gerð kynningargagna
  • Kynning og rökstuðningur greiningarefnis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði, hagfræði eða verkfræði
  • Starfsreynsla af fjármálamarkaði er kostur
  • Framúrskarandi færni í samskiptum
  • Reynsla af verðmatsgerð er kostur
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta ásamt færni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Markviss og sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing birt13. október 2026
Umsóknarfrestur27. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjastræti 6
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar