

Samningastjóri
Vilt þú hafa áhrif á hvernig samningar tryggja skilvirkan rekstur og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini Veitna?
Veitur leita að framsýnum og lausnarmiðuðum einstaklingi sem hefur auga fyrir smáatriðum og hefur hæfileika til þess að skapa skýra og skilvirka umgjörð utan um rekstrar- og fjárfestingarverkefni með góðum samningum.
Sem samningastjóri hjá Veitum berð þú ábyrgð á mótun og eftirfylgni samninga. Þú tryggir að samningar séu skýrir og reknir í samræmi við skilmála. Þú vinnur náið með rekstrarfólki verkefnastjórum og gegnir lykilhlutverki í samskiptum og eftirfylgni gagnvart verktökum þegar upp kemur ágreiningur.
- Móta og þróa samninga.
- Innleiðing og rekstur samninga.
- Fylgja eftir framkvæmd og gæðum samninga.
- Meta árangur og greina tækifæri til umbóta.
- Stýra samskiptum við alla helstu hagaðila.
- Stuðningur við rekstrarfólk og verkefnastjóra vegna verksamninga, m.a. ágreiningsmál.
- Reynsla af samningagerð, verkefnastjórnun og umsjón með verksamningum.
- Góð færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að miðla málum og leysa ágreining.
- Hæfni til að greina samningsskilmála, meta áhættu og fylgja eftir réttindum og skyldum samningsaðila.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem í verkefnastjórnun, verkfræði, viðskiptafræði eða lögfræði, eða sambærileg menntun.
- Þekking á samninga- og verktakarétti og opinberum innkaupum er kostur.
Veitur tengja samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Við veitum lífsgæði til framtíðar með nýsköpun, samstarfi og öruggum rekstri. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónusta um 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í forgrunn, leitum stöðugt leiða til að bæta þjónustuna og vinnum að því að skapa trausta innviði til framtíðar.
Við bjóðum fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem framsýni, hagsýni, heiðarleiki og frumkvæði skipta máli. Við trúum að fjölbreytileiki skili betri árangri og hvetjum öll sem uppfylla grunnskilyrði til að sækja um.
Kynntu þér vinnustaðinn á www.veitur.is/vinnustadurinn.
Umsóknarfrestur er til og með 14. október 2026. Nánari upplýsingar veitir Bára Jónsdóttir, forstöðukona Samninga og aðfangastýringar, á netfanginu [email protected].
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður listi yfir umsækjendur ekki birtur.
Íslenska
Enska










