
Sérfræðingur í launum og kjaramálum
Viltu taka þátt í að þróa skilvirka, örugga og góða þjónustu í launamálum ríkisins?
Fjársýslan leitar að öflugum sérfræðingi til starfa á mannauðssviði.
Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og spennandi verkefnum sem tengjast launamálum ríkisins – allt frá móttöku gagna og úrvinnslu þeirra til greiðslu launa ríkisstarfsfólks. Áhersla er lögð á skilvirkni, áreiðanleika, gagnaöryggi og lausnir sem skapa raunverulegt virði fyrir ríkið.
Við leitum að töluglöggum, nákvæmum og skipulögðum einstaklingi sem hefur áhuga á launamálum, kjarasamningum og stöðugum umbótum. Þú munt starfa í fjölbreyttu og faglegu umhverfi með hópi sérfræðinga sem leggur metnað í góða þjónustu, gott samstarf og vönduð vinnubrögð.
Um starfið
Á mannauðssviði Fjársýslunnar starfar öflugur hópur við launavinnslu og keyrslur fyrir stofnanir ríkisins. Sviðið veitir auk þess mannauðsráðgjöf og fræðslu um launa- og kjaramál ásamt því að leita stöðugt leiða við að efla og þróa þjónustuna.
Fjársýslan er þjónustu- og þekkingarstofnun á sviði opinberra fjármála. Við veitum ríkisstofnunum fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf á sviði opinberra innkaupa, fjármála og mannauðsmála og vinnum markvisst að því að þróa bætta þjónustu og skapa virði fyrir viðskiptavini.
- Launavinnsla fyrir ríkisstofnanir
- Fræðsla, ráðgjöf og miðlun upplýsinga
- Greining gagna og upplýsingaúrvinnsla
- Þróa ferla, verklag og stafrænar lausnir
- Samskipti og samstarf við ríkisstofnanir
- Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast starfseminni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Góð þekking á launavinnslu og kjarasamningum
- Góð þekking á Excel
- Reynsla af Orra-launakerfi ríkisins er kostur
- Reynsla af nýtingu gervigreindartóla kostur
- Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
- Frumkvæði, skipulagshæfni og nákvæmni
- Mjög góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
- Gott vald á íslensku og ensku
Íslenska
Enska










