BRÚ Lífeyrissjóður
BRÚ Lífeyrissjóður

Samskiptastjóri

Brú lífeyrissjóður óskar eftir að ráða drífandi samskiptastjóra sem vill taka þátt í að þróa upplýsingagjöf, fræðslu og þjónustu sjóðsins. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi gegnir lykilhlutverki í að efla samskipti við sjóðfélaga, launagreiðendur og aðra haghafa og stuðla að auknum skilningi á lífeyrismálum.

Samskiptastjóri ber ábyrgð á innri og ytri upplýsingamiðlun sjóðsins og leiðir þróun miðlunar og stafrænnar þjónustu í samstarfi við starfsfólk og stjórnendur. Við leitum að einstaklingi sem hefur góða hæfni til að koma flóknum upplýsingum á framfæri á skýran og aðgengilegan hátt, hefur áhuga á nýtingu stafrænnar tækni og vill hafa áhrif á þjónustuupplifun sjóðfélaga.

Helstu verkefni:

  • Ábyrgð á innri og ytri upplýsingamiðlun sjóðsins.
  • Mótun, framkvæmd og eftirfylgni samskiptastefnu.
  • Umsjón með heimasíðu, samfélagsmiðlum og öðru stafrænu efni.
  • Gerð frétta, greina, fræðsluefnis og árs- og sjálfbærnisskýrslu.
  • Umsjón með fundum, fræðsluerindum og viðburðum og annarri kynningastarfsemi.
  • Ráðgjöf til stjórnenda um upplýsingagjöf, miðlun og samskipti við haghafa.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla sé af upplýsingamiðlun, samskiptamálum, markaðssetningu eða fjölmiðlun.
  • Framúrskarandi færni í íslensku og góð enskukunnátta.
  • Reynsla af vefumsjón, samfélagsmiðlum og stafrænni miðlun.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund.

Við bjóðum upp á:

  • Ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf í öflugum lífeyrissjóði.
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustu og samskipta sjóðsins.
  • Krefjandi og metnaðarfullt starfsumhverfi.
  • Gott samstarfsfólk og tækifæri til faglegrar þróunar.

Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt30. september 2026
Umsóknarfrestur15. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreinaskrifPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.VefumsjónPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar