BRÚ Lífeyrissjóður
BRÚ Lífeyrissjóður

Sviðsstjóri þjónustusviðs

Brú lífeyrissjóður óskar eftir að ráða öflugan sviðsstjóra þjónustusviðs sem vill taka þátt í að móta framtíð þjónustu sjóðsins. Um er að ræða lykilstöðu þar sem viðkomandi leiðir þjónustu við sjóðfélaga og aðra haghafa, þróun þjónustuupplifunar, upplýsingagjöf um lífeyris- og lánamál og áframhaldandi uppbyggingu stafrænna þjónustuleiða. Hjá Brú lífeyrissjóði starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur áherslu á fagmennsku, samvinnu og framúrskarandi þjónustu. Við vinnum að því að veita sjóðfélögum, lántakendum, launagreiðendum og öðrum haghöfum skýra, aðgengilega og trausta þjónustu og þróa lausnir sem mæta þörfum framtíðarinnar.

Við leitum að leiðtoga sem hefur skýra sýn á framúrskarandi þjónustu, brennur fyrir því að skapa verðmæti fyrir sjóðfélaga og hefur getu til að leiða fólk, breytingar og umbætur í öflugu og metnaðarfullu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stýra og þróa þjónustusviði sjóðsins.
  • Móta og innleiða stefnu um þjónustu og þjónustuupplifun.
  • Ábyrgð á upplýsingagjöf um lífeyris- og lánamál.
  • Tryggja faglega og skilvirka afgreiðslu mála og umsókna.
  • Leiða umbóta- og þróunarverkefni, þar á meðal stafræna þjónustu.
  • Efla öflugt teymi og jákvæða þjónustumenningu.
  • Taka virkan þátt í stefnumótun og þróun sjóðsins.
  • Situr í framkvæmdastjórn sjóðsins.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Góð þjónustu- og viðskiptahugsun.
  • Reynsla af stjórnunar- og leiðtogastörfum.
  • Reynsla af þróunar- og breytingaverkefnum.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, árangursmiðuð vinnubrögð og hæfni til að leiða fólk til árangurs.
  • Þekking á lífeyris-, lánamálum eða fjármálaþjónustu er kostur.

Við bjóðum upp á:

  • Ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf í öflugum lífeyrissjóði.
  • Tækifæri til að stýra og þróa nýtt svið sjóðsins.
  • Krefjandi og metnaðarfullt starfsumhverfi.
  • Gott samstarfsfólk og tækifæri til faglegrar þróunar.

Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt30. september 2026
Umsóknarfrestur15. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar