ECIT
ECIT
ECIT

Teymisstjóri launaþjónustu hjá ECIT

Vilt þú leiða öflugt teymi sérfræðinga og taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun launaþjónustu hjá ECIT?

ECIT á Íslandi er alþjóðlegt fyrirtæki á sviði bókhalds- og launavinnslu með um 110 sérfræðinga sem hafa aðsetur á 13 stöðum um land allt.

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum teymisstjóra launaþjónustu með sterka leiðtogahæfni, þjónustulund og getu til að halda áfram að byggja upp öflugt teymi.

Starfið felur í sér ábyrgð á daglegum rekstri launateymisins, rekstrarlegri eftirfylgni, verkefnastýringu, mönnun, þjálfun og stuðningi við starfsfólk og þjónustu við fjölbreyttan hóp viðskiptavina.

Teymisstjóri launaþjónustu er hluti af stjórnendateymi fyrirtækisins og vinnur náið með rekstrarstjóra að því að tryggja faglega þjónustu, skilvirka verkferla og áframhaldandi þróun launaþjónustunnar.

Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, tækifæri til að hafa áhrif á mótun þjónustunnar og þátttöku í innleiðingu nýrra lausna og umbótaverkefna.

Við bjóðum

  • Áhugavert og fjölbreytt stjórnendastarf.
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustu, ferla og teymis.
  • Framsækið og metnaðarfullt starfsumhverfi með áherslu á nýsköpun og tækni.
  • Öflugt samstarfsfólk, góða vinnustaðamenningu og sveigjanleika.
  • Tækifæri til starfsþróunar innan öflugs og vaxandi fyrirtækis.

Fram undan eru spennandi þróunarverkefni á sviði launaþjónustu, þar á meðal áframhaldandi þróun verkferla og innleiðing nýrra lausna.

Í samræmi við jafnréttisstefnu okkar hvetjum við öll til að sækja um starfið, óháð kyni, aldri eða bakgrunni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða og efla launateymið og stuðla að jákvæðri og árangursdrifinni teymismenningu.
  • Bera ábyrgð á mönnun, verkefnastýringu og skilvirkri nýtingu auðlinda innan teymisins.
  • Tryggja framúrskarandi þjónustu, gæði og skil á launavinnslu samkvæmt verkferlum og tímamörkum.
  • Stuðla að áframhaldandi þróun launaþjónustunnar með umbótum á verkferlum, kerfum og þjónustu.
  • Fylgja eftir rekstrarlegum markmiðum teymisins, þar á meðal nýtingu, afköstum og arðsemi verkefna.
  • Bera ábyrgð á innleiðingu nýrra viðskiptavina og stuðla að sterkum og farsælum viðskiptasamböndum.
  • Vinna náið með stjórnendum, starfsfólki og viðskiptavinum að áframhaldandi vexti og árangri launaþjónustunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af launavinnslu og góð þekking á launamálum er kostur.
  • Reynsla af stjórnun og/eða verkefnastjórnun er kostur.
  • Sterk samskipta- og leiðtogahæfni.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Greiningarhæfni og sterk þjónustulund.
  • Áhugi á nýrri tækni, sjálfvirknivæðingu og tækifærum sem felast í stafrænni þróun og umbótum.
  • Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun upplýsingakerfa.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

Auglýsing birt21. september 2026
Umsóknarfrestur19. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar