
Greinandi á Vinnumarkaðs- og félagsmálasviði
Vilt þú leggja þitt af mörkum í baráttunni fyrir réttindum og bættum kjörum vinnandi fólks?
Efling leitar að öflugum greinanda sem hefur áhuga á vinnumarkaði, samfélagsmálum og því að umbreyta gögnum í þekkingu sem skiptir máli. Starfið er fjölbreytt og spannar allt frá greiningu vinnumarkaðsgagna og þróun félagsmannahópsins yfir í kannanir, kjarasamninga og miðlun niðurstaðna.
Greinandinn fær tækifæri til að kafa ofan í gögn, greina þróun og miðla niðurstöðum þannig að þær nýtist við kjarasamningagerð, ákvarðanatöku, stefnumótun og hagsmunagæslu fyrir eitt stærsta stéttarfélag landsins.
Við leitum að einstaklingi sem er sterkur í greiningum, forvitinn að eðlisfari og hefur gaman af því að spyrja réttu spurninganna. Einstaklingi sem vill ekki bara vinna með tölur heldur skilja hvað þær segja um fólk, vinnumarkaðinn og samfélagið.
Greinandi starfar með 20 öðrum starfsmönnum Vinnumarkaðs- og félagsmálasviðs og gegnir lykilhlutverki í framþróun verkefna sviðsins. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri Vinnumarkaðs- og félagsmálasviðs.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vöktun, greining og úrvinnsla á innlendri vinnumarkaðstölfræði með hliðsjón af félagsmannahópi Eflingar.
- Vinna við umbeðnar greiningar á vinnumarkaðstölfræði, innlendri og erlendri.
- Smíði og úrvinnsla á könnunum sem félagið pantar og/eða framkvæmir sjálft. Ráðgjöf og aðstoð vegna þátttöku félagsins í könnunum framkvæmdum af öðrum.
- Greining og úrvinnsla á tölfræði tengt félagsmannahópnum og geirum félagsins.
- Greining og úrvinnsla á tölfræði tengt starfsemi Vinnumarkaðs- og félagsmálasviðs, ss. málavinnslu.
- Þátttaka í þróun á gagnakerfum félagsins í samvinnu við aðra sem koma að sameiginlegum gagna- og upplýsingatæknimálum.
- Aðstoð og þátttaka í miðlun tölulegra upplýsinga; greinaskrif, kynningar o.s.frv.
Vinna tengd kjarasamningum:
- Greiningarvinna, t.d. kostnaðarmat.
- Þátttaka í sérfræðingahópum.
- Samvinna með viðsemjendum og öðrum aðilum milli kjarasamninga.
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf sem felur í sérhæfingu í hagfræði, megindlegum félagsvísindum, viðskiptafræði, tölfræði eða skyldum fögum eða sýnt fram á sambærilega hæfni. Meistarapróf kostur.
- Þekking á helstu gagnabönkum í innlendri og erlendri vinnumarkaðstölfræði kostur.
- Góð tök á töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku. Norðurlandamál kostur.
- Færni til að vinna sjálfstætt.
- Færni til að vinna myndræna framsetningu gagna og glærukynningar.
- Reynsla af störfum stéttarfélaga eða störfum tengdum vinnumarkaðsmálum kostur.
Efling stéttarfélag er í dag eitt stærsta og öflugasta stéttarfélag landsins. Eflingarfélagar bera uppi íslenskt samfélag, þeir sinna grunnstoðum þess, vinna við umönnun, ræstingu, ferðaþjónustu og þjónustu auk fjölda annarra starfa verkafólks. Þetta eru störf sem halda samfélaginu gangandi en hafa lengi verið vanmetin og vangreidd. Efling berst fyrir réttlæti, jöfnuði og sanngjarnri hlutdeild félagsmanna sinna í verðmætasköpun samfélagsins.
Skrifstofa Eflingar stéttarfélags sinnir fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að tryggja félagsfólki réttindi, bætt kjör og öryggi á vinnumarkaði. Meðal kjarnastarfsemi félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna og veita aðstoð ef grunur leikur á að lög eða kjarasamningar séu brotin.
Umsóknarfrestur er til og með 23. september nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is
Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Bjarki Pétursson ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska










