Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Deildarstjóri á skrifstofu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar

Laust er til umsóknar fullt starf deildarstjóra á skrifstofu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands.

Deildarstjóri hefur umsjón með daglegum rekstri, fjármálum og þeirri þjónustu sem skrifstofa Hjúkrunar og ljósmóðurfræðideildar veitir vegna náms, kennslu og rannsókna. Viðkomandi starfar náið með deildarforseta, deildarráði og rekstrarstjóra Heilbrigðisvísindasviðs, og hluti af stoðþjónustu sviðsins. Undir deildarstjóra heyra um tíu manns og er vinnuaðstaða í Eirbergi, Eiríksgötu 34.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur og stjórnun stoðþjónustu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar

  • Umsjón með fjármálum deildar, s.s. fjárhagsáætlun, kennsluáætlunum og -uppgjörum, rekstrar- og fjárhagsupplýsingum

  • Samstarf og aðstoð við deildarforseta, svo sem undirbúningur fyrir deildar- og deildarráðsfundi og utanumhald og eftirfylgni mála sem þar eru tekin fyrir

  • Þjónusta, þróun og efling starfsemi deildaskrifstofu í takt við stefnu Heilbrigðisvísindasviðs og Háskóla Íslands

  • Umsjón með gæða- og skjalamálum deildar

  • Undirbúningur fyrir fundi og viðburði á vegum deildarinnar

  • Ýmis tilfallandi verkefni í samráði við deildarforseta Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar, auk rekstrarstjóra og forseta Heilbrigðisvísindasviðs

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist starfi, til dæmis á sviði viðskiptafræði eða stjórnunar. Meistarapróf er kostur

  • Reynsla af stjórnun og leiðtogahæfni

  • Reynsla af fjármálaverkefnum og rekstri

  • Reynsla af störfum í háskólaumhverfi og/eða í opinberri stjórnsýslu æskileg

  • Góð samstarfshæfni og rík þjónustulund

  • Góð færni í Excel

  • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti

Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur21. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eiríksgata 34, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar