

Brennur þú fyrir umbótum og skilvirkum ferlum?
VÍS leitar að öflugum sérfræðingi í teymið Viðskiptaferli. Starfið felur í sér að tryggja að viðskiptaferlar VÍS séu áreiðanlegir, skilvirkir og styðji við góða þjónustu. Starfið tengir saman rekstur, viðskiptaþekkingu, ferla og tækni. Hlutverkið styður við starfsemi VÍS með útgáfu, úrvinnslu og umsjón trygginga, auk stuðnings við notendur í flóknari málum sem tengjast viðskiptaferlum. Áhersla er lögð á stöðugar umbætur, einföldun og sjálfvirknivæðingu, þar sem viðkomandi tekur þátt í að þróa og innleiða lausnir sem einfalda daglegt starf og bæta upplifun viðskiptavina og starfsfólks.
- Sinnir útgáfu, úrvinnslu og umsjón trygginga, og veitir framlínu stuðning og ráðgjöf við þau verkefni
-
Greinir rekstrarvandamál og frávik og vinnur að umbótum.
-
Hefur yfirsýn yfir viðskiptarferla frá upphafi til enda og ber ábyrgð á eftirliti og vöktun.
-
Kortleggur ferla og metur tækifæri til einföldunar og sjálfvirknivæðingar.
-
Skilgreinir viðskiptaþarfir og kröfur um tæknilausnir
-
Tekur þátt í prófunum, notendasamþykktum og innleiðingu nýrra eða breyttra ferla, kerfa og lausna
-
Skjalfestir og viðheldur þekkingu á ferlum, verklagsreglum og leiðbeiningum fyrir starfsfólk
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskiptafræði, fjármála, verkfræði eða sambærilegra greina
-
Reynsla af tryggingastarfsemi, fjármálastarfsemi og/eða greiningar- og umbótavinnu er kostur
-
Gott tæknilæsi og hæfni til að tileinka sér ný kerfi og tæknilausnir er kostur
-
Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
-
Frumkvæði, sjálfstæði og áreiðanleg vinnubrögð
-
Góð færni í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku
-
Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
-
Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
-
Árlegur líkamsræktarstyrkur
-
Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
-
Heilsufarsskoðun og bólusetningu
-
Virkt starfsmannafélag sem býður m.a. upp á golfklúbb og aðgang að orlofshúsum
Íslenska
Enska










