Terra hf.
Terra hf.
Terra hf.

Gæða- og öryggisstjóri

Viltu móta framtíð gæða-, öryggis- og umhverfismála hjá Terra?


Við leitum að öflugum og reynslumiklum leiðtoga til að leiða og þróa þessi mikilvægu málefni þvert á Terra samstæðuna.

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir sterkri faglegri þekkingu, á auðvelt með að virkja fólk til samstarfs og hefur drifkraft til að ná árangri. Einstaklingi sem sér tækifæri til umbóta, fær fólk með sér og stuðlar að mælanlegum árangri í gæða-, öryggis- og umhverfismálum.

Gæða- og öryggisstjóri ber ábyrgð á stjórnunarkerfi félagssins og leiðir áframhaldandi þróun gæða-, öryggis- og umhverfismála þvert á samstæðuna. Starfið gegnir lykilhlutverki í að efla ennfrekar öryggis- og umbótamenningu og tryggja að metnaður Terra á þessum sviðum skili sér í daglegum rekstri.

Þú færð skýrt umboð og svigrúm til að þróa málaflokkana til framtíðar, leiða öflugt teymi og vinna með stjórnendum og starfsfólki að stöðugum umbótum. Starfið er fjölbreytt og býður upp á tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á starfsemina og stuðla að öruggari, ábyrgari og betri vinnustað.

Terra starfar samkvæmt vottuðu stjórnunarkerfi í samræmi við ISO 9001 og ISO 14001. Framundan eru spennandi verkefni við áframhaldandi þróun kerfisins auk undirbúnings að fyrirhugaðri innleiðingu ISO 45001 fyrir heilsu og öryggi starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróa og leiða gæða-, öryggis- og umhverfismál
  • Bera ábyrgð á rekstri og þróun stjórnunarkerfis
  • Leiða umbótaverkefni með áherslu á öryggi, gæði, verklag og árangur
  • Stýra vinnu við áhættumat, atvikagreiningar, rótargreiningar og fyrirbyggjandi aðgerðir
  • Hafa umsjón með innri og ytri úttektum og tryggja markvissa eftirfylgni
  • Greina árangur, þróa lykilmælikvarða og miðla upplýsingum til stjórnenda
  • Hafa umsjón með undirbúningi fyrirhugaðrar innleiðingar ISO 45001
  • Veita stjórnendum og starfsfólki ráðgjöf, fræðslu og stuðning á sviði gæða- og öryggismála
  • Leiða teymi sem sinnir gæða-, öryggis-, umhverfismálum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða starfsreynslu sem nýtist í starfi
  • Góða þekkingu á vinnuvernd, áhættustjórnun og öryggismálum
  • Þekkingu og reynslu af ISO-stöðlum, einkum ISO 9001, ISO 14001 og ISO 45001
  • Reynsla af umbótaverkefnum, innleiðingu breytinga og eftirfylgni
  • Leiðtogahæfni og getu til að virkja fólk og efla samvinnu
  • Jákvæðni, sterka samskiptahæfni, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði, drifkraft og lausnamiðað hugarfar
  • Reynsla af stjórnun er kostur
Auglýsing birt1. september 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurhraun 10, 210 Garðabær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar