

Viltu taka þátt í að móta framtíð jarðhitans?
Eldar Power er nýtt íslensk-bandarískt tækniþróunarfélag sem vinnur að því að virkja þá gríðarlegu möguleika sem felast í ofurheitum jarðhitaauðlindum. Við erum að byggja upp kjarnateymi félagsins á Íslandi og leitum að 2–3 reynslumiklum sérfræðingum á sviði háhitanýtingar og tengdrar verkfræði sem vilja taka þátt í uppbyggingu félagsins.
Fyrsti áfangi starfseminnar mun snúa að undirbúningi og framkvæmd tilraunaverkefnis á Íslandi, samhliða þróun á þeim tæknilausnum sem þarf til að skala upp ofurheita jarðhitavinnslu á heimsvísu.
Við leitum að fólki með víðtæka reynslu á einu eða fleiri af eftirfarandi sviðum:
- Hönnun jarðhitahola, framkvæmd og eftirlit með borverkefnum
- Hönnun holutoppsbúnaðar, gufuveitna, ferla og vinnslukerfa jarðhitavirkjana
- Forðafræði háhitakerfa
- Verkefnaþróun og verkefnastýring jarðhitaverkefna
Um er að ræða lykilstöður innan félagsins og verða nákvæm verksvið og ábyrgð mótuð með hliðsjón af reynslu og styrkleikum þeirra sem ráðnir verða.
Við leitum að einstaklingum með afburða fagþekkingu og sterka leiðtogahæfni sem munu bera faglega ábyrgð á sínu sérsviði og leiða þverfaglega verkefnavinnu innlendra og erlendra ráðgjafa í fremstu röð.
Menntun, reynsla og hæfni
Við leitum að fólki sem býr yfir:
- Framúrskarandi tækniþekkingu og viðeigandi háskólamenntun
- Víðtækri reynslu af jarðhitaverkefnum, svo sem borunum, hönnun og uppbyggingu jarðvarmavirkjana, forðafræði og skyldum greinum
- Reynslu af því að takast á við og leysa flókin tæknileg verkefni
- Sterkri greiningarhæfni og lausnamiðaðri nálgun
- Leiðtogahæfni og getu til að leiða þverfaglega hópa sérfræðinga
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Mjög góðri enskukunnáttu, bæði í ræðu og riti
Reynsla af ofurheitum jarðhitaverkefnum eins og IDDP er kostur en ekki skilyrði. Reynsla úr hefðbundnum jarðhitaverkefnum eða olíu- og gasiðnaðinum er hins vegar skilyrði.
Þetta er einstakt tækifæri til að koma að uppbyggingu nýs félags með háleit markmið um stóraukna hlutdeild jarðhita í orkubúskap heimsins. Þetta er einnig tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun nýrrar jarðhitatækni og þau verkefni sem verða byggð upp á næstu árum.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum til að gegna lykilhlutverki hjá Eldar Power og leiða þróun nýrrar kynslóðar jarðhitanýtingar.
Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2026. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Björn í síma 820 6530.
Enska










