
Verne
We’ve found the best place in the world for high intensity compute. Right here, in Iceland. Using 100% renewable energy, we give you supernatural capability that doesn’t cost the Earth. When you're backed by the planet, your potential is limitless.
Verkefnastjóri framkvæmda (On-Site Engineering Manager)
Verne Global óskar eftir að ráða reynslumikinn verkefnastjóra framkvæmda til að hafa yfirumsjón með verkstjórn umfangsmikillar og hraðrar uppbyggingar gagnvers Verne þar sem unnið er samkvæmt “FIDIC Yellow Book” hönnunar- og verktakasamningi.
Viðkomandi ber ábyrgð á að hönnun, tæknileg skil, innkaup, framkvæmdir, gangsetning og afhending gagnaversins samræmist kröfum og markmiðum verkefnisins, stöðlum viðskiptavina og lögbundnum skyldum.
Um er að ræða lykilhlutverk þar sem áhersla er lögð á tæknileg gæði, samhæfingu flókinna verkþátta og farsæla afhendingu afkastamikillar gagnaversaðstöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Yfirumsjón með framkvæmd verkefnisins á verkstað og samræma tæknilega vinnu þvert á fagsvið.
- Utanumhald og yfirferð á gögnum frá verktökum, hönnunargögnum, tækniskjölum, fyrirspurnum og öðrum hönnunarbreytingum.
- Samræma störf þverfaglegra teyma á sviði véla- og rafmagnsvinnu, burðarvirkja, brunavarna, stjórn- og öryggiskerfa, upplýsingakerfa og í tengslum við prófanir og gangsetningu.
- Stuðningur við innkaup, mat á birgjum, FAT/SAT prófanir og afhendingu langtímabúnaðar.
- Samskipti við verktaka, ráðgjafa, stjórnvöld, rekstrarteymi, fulltrúa viðskipavina og aðra hagsmunaaðila.
- Tryggja vandaða skjalastjórnun, BIM samhæfingu, breytingastjórnun og verkfræðilega stýringu.
- Eftirlit með áhættu, samræmingu, undirbúningi gangsetningar og skilyrðum afhendingar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum verkefnum tengdum framkvæmdum gagnavera, rekstrarlega mikilvægum mannvirkjum eða öðrum flóknum MEP framkvæmdum.
- Góð þekking á hönnunar- og framkvæmdaverkefnum (design-build) og FIDIC samningum.
- Reynsla af stjórnun þverfaglegra teyma í hröðu umhverfi.
- Góð þekking og skilningur á gangsetningu, rekstrarundirbúningi, BIM-samhæfingu og gæðaeftirliti.
- Leiðtogahæfni ásamt framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Auglýsing birt26. ágúst 2026
Umsóknarfrestur8. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Valhallarbraut 868, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
ByggingafræðingurFrumkvæðiLeiðtogahæfniMannleg samskiptiSkipulagVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viltu leiða stórt Evrópuverkefni?
EIMUR

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Skipulagsstjóri
Reykjalundur

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Avionics / Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Viðskiptastjóri ferðaþjónustu
Íslandsstofa

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Mechanical Designer
Borealis Data Center ehf.