
Viltu leiða stórt Evrópuverkefni?
Langar þig að hafa áhrif á framtíð sjálfbærrar orku og samfélagsþróunar í Evrópu?
Eimur leitar að öflugum verkefnastjóra til að leiða stórt evrópskt samstarfsverkefni fyrir hönd Eims og 19 samstarfsaðila í 10 löndum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur drifkraft, frumkvæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Starfið hentar þeim sem hafa gaman af því að halda utan um mörg verkefni í senn, tengja saman fólk með ólíkan bakgrunn og tryggja að verkefni skili raunverulegum árangri.
Þetta er einstakt tækifæri til að leiða metnaðarfullt alþjóðlegt þróunarverkefni sem stuðlar að sjálfbærari og betri framtíð fyrir komandi kynslóðir. Markmið verkefnisins er að styðja samfélög við að nýta eigin auðlindir betur, auka sjálfbærni og draga úr hæði á innfluttum orkugjöfum. Verkefnið byggir á hugmyndafræði um orkujákvætt hérað (e. Positive Energy District), þar sem samfélag framleiðir meiri endurnýjanlega orku en það notar yfir árið.
Um starfið
Verkefnastjóri ber ábyrgð á daglegri samræmingu verkefnisins og vinnur náið með samstarfsaðilum víðs vegar um Evrópu. Starfið felur í sér fjölbreytt samskipti, skipulagningu, eftirfylgni og utanumhald með framvindu verkefnisins. Verkefnistíminn er frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2030. Starfsstöð verkefnastjóra er á Akureyri, en einnig kemur til greina að hún verði á öðrum stöðum á Norðurlandi.
- Dagleg samræming og utanumhald alþjóðlegs samstarfsverkefnis
- Samskipti við samstarfsaðila, styrkveitanda og aðra hagaðila
- Eftirfylgni með verk-, tíma- og kostnaðaráætlunum
- Umsjón með fundum, vinnustofum og viðburðum verkefnisins
- Upplýsingagjöf og miðlun verkefnisins innanlands og erlendis
- Samræming vinnupakka og stuðningur við verkefnateymi samstarfsaðila
- Gerð stöðuskýrslna og framvindumats
- Tryggja að markmiðum verkefnisins sé náð á réttum tíma og innan fjárhagsramma
- Önnur verkefni sem framkvæmdastjóri felur viðkomandi hverju sinni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Haldbær reynsla af verkefnastjórnun og eftirfylgni verkefna
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Reynsla af samstarfi í fjölþjóðlegu eða fjölmenningarlegu umhverfi er kostur
- Reynsla af þátttöku í Evrópuverkefnum er kostur
- Þekking og áhugi á orkumálum er kostur
- Þekking á verkefnastjórnunaraðferðum og stöðlum, svo sem PMI, IPMA eða PRINCE2, er kostur
- Mjög góð skipulagshæfni og hæfni til að sjá heildarmyndina án þess að missa sjónar á smáatriðunum
- Reynsla af fjárhagslegri eftirfylgni verkefna er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð hugsun
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Íslenska
Enska










