
Landsbankinn
Hjá Landsbankanum starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíka þekkingu, reynslu og bakgrunn. Reynslan sem býr í starfsfólkinu styrkir stoðir rekstrarins á meðan fjárfesting í öflugri endurmenntun, starfsþróun og ráðning nýrra starfskrafta tryggir stöðuga framþróun.
Við erum hreyfiafl í samfélaginu og vinnum ötullega að því að rödd bankans sé sterk, traustvekjandi, að hún fylli starfsfólk stolti og efli árangursdrifna menningu.

Sérfræðingur í innri endurskoðun
Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi til starfa í innri endurskoðun Landsbankans. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni, samskipti við stjórnendur og sérfræðinga á ólíkum sviðum og tækifæri til stöðugrar faglegrar þróunar. Hlutverk deildarinnar er að veita óháða og hlutlæga staðfestingu og sýn á virkni innra eftirlits og vinnubrögð bankans með áhættumiðuðum, virðisaukandi skoðunum sem styðja við hlítni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í undirbúningi og framkvæmd skoðana.
- Greining og mat á stjórnarháttum, áhættustýringu og virkni innra eftirlits.
- Mat á fylgni við lög, reglur og innra regluverk.
- Gerð skýrslna og framsetning niðurstaðna og tillagna að úrbótum
- Þátttaka í gæðastarfi deildarinnar og nýtingu tækni og gervigreindar í innri endurskoðun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Góð samskiptafærni og hæfni til að miðla upplýsingum og niðurstöðum með skýrum hætti.
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði, dómgreind og gagnrýnin hugsun.
- Greiningar- og skipulagshæfni.
- Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Reynsla af starfsemi fjármálafyrirtækja og fagvottun á sviði innri endurskoðunar er kostur.
Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur24. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjastræti 6
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Officer - Trade Relations Division - (TRD)
EFTA Secretariat

Sérfræðingur í gagnalausnum
Lífeyrissjóður verzlunarmanna

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Deildarstjóri lagna og lofræsinga / Head of Discipline HVAC
COWI

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
EFLA hf

Verkefnastjórnun á byggingasviði
EFLA hf

Bókhald / Fjármál
Mögnum

Senior Software Engineer
Laki Power

Robotics Software Engineer
Laki Power

Sérfræðingur í tækniþróun og nýsköpun
Orka náttúrunnar

Véltæknifræðingur, Vélaverkfræðingur
Stálvík ehf