Efling stéttarfélag
Efling stéttarfélag

Þjónustufulltrúi

Efling stéttarfélag leitar að öflugum og metnaðarfullum þjónustufulltrúa til starfa á Þjónustusviði. Þar gegnir þú lykilhlutverki í daglegri þjónustu við félagsfólk, tekur á móti erindum og sérð um afgreiðslu umsókna í sjóði félagsins, svo sem orlofs-, fræðslu- og sjúkrasjóð.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gott vald á íslensku og ensku og á auðvelt með að tjá sig bæði í ræðu og riti. Þekking á öðrum tungumálum er mikill kostur. Viðkomandi þarf að vera þjónustumiðaður, jákvæður og reiðubúinn til að taka að sér fjölbreytt verkefni á skrifstofu Eflingar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita framúrskarandi þjónustu og samskipti við félagsfólk.
  • Móttaka, svörun og úrvinnsla á erindum félagsfólks.
  • Afgreiðsla umsóknir í sjóði félagsins.
  • Veita upplýsingar og svara algengum fyrirspurnum um vinnuréttindi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf og/eða háskólamenntun.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og menningarlæsi.
  • Rík þjónustulund og umburðarlyndi.
  • Góð tök á íslensku og ensku í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta mikill kostur.
  • Góð tölvukunnátta og reynsla í Office 365.

Efling stéttarfélag er í dag eitt stærsta og öflugasta stéttarfélag landsins. Eflingarfélagar bera uppi íslenskt samfélag, þeir sinna grunnstoðum þess, vinna við umönnun, ræstingu, ferðaþjónustu og þjónustu auk fjölda annarra starfa verkafólks. Þetta eru störf sem halda samfélaginu gangandi en hafa lengi verið vanmetin og vangreidd. Efling berst fyrir réttlæti, jöfnuði og sanngjarnri hlutdeild félagsmanna sinna í verðmætasköpun samfélagsins.

Skrifstofa Eflingar stéttarfélags sinnir fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að tryggja félagsfólki réttindi, bætt kjör og öryggi á vinnumarkaði. Meðal kjarnastarfsemi félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna og veita aðstoð ef grunur leikur á að lög eða kjarasamningar séu brotin.

www.efling.is

Umsóknarfrestur er til og með 23. september nk.

Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is

Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Bjarki Pétursson ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt14. september 2026
Umsóknarfrestur23. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar