

Það á að vera gaman í vinnunni...
Um er að ræða sölustarf í persónu (face to face).
Unnið er frá kl. 13:00-18:00, 16:45-21:00 eða 13:00-21:00.
Frábært launatækifæri - Allt frá 40%-100% Starf í boði.
Vilt þú:
- Vera á skemmtilegum og gefandi vinnustað?
- Upplifa tillitssemi og skilning í vinnu?
- Vinna á sveigjanlegan vinnutíma með góð launatækifæri?
- Hafa áhrif á nærumhverfið þitt?
- Læra nýja hluti af hæfileikaríku fólki?
Ef svo er, þá viljum við endilega fá þig í vinnu!
________________________________________________________
Starfsumhverfi
Við leggjum mikið upp úr öflugu félagslífi og setjum starfsánægju ávallt í efsta sæti. Til marks um það höfum við saman hlotið verðlaun VR fyrir fyrirtæki ársins í þrígang - og viljum gera betur á hverju ári.
________________________________________________________
Starfsemi
Við erum markaðsfyrirtæki með fjölbreytta starfsemi. Það sem við erum bæði best í, og gerum mest af, er að vinna með íslenskum hjálparsamtökum í að gera heiminn að betri stað.
________________________________________________________
Hlutverkið
Starfið felur í sér fjölbreytt samskipti í persónu fyrir hjálparsamtök. Þetta er gefandi starf sem kennir dýrmæta þekkingu á sannfæringu og sölu.
Við tökum vel á móti öllu nýju starfsfólki með góðum þjálfunarferil - svo öll geti komið sér vel fyrir í starfi og félagslífi sem allra fyrst.
Ef þú hefur áhuga á að vera hluti af okkar frábæra teymi, sendu inn umsókn. Við hlökkum til að heyra frá þér!
________________________________________________________
Frekari upplýsingar
Meira um vinnustaðinn og fríðindi í starfi má finna hér.
-
Íslenska
Enska










