
BEWI
BEWI Íslandi er leiðandi fyrirtæki á sviði umbúða- og pökkunarlausna með sterka stöðu í sjávarútvegi og matvælaiðnaði. Hjá fyrirtækinu starfar öflugt teymi sem leggur áherslu á góða þjónustu, fagmennsku og náið samstarf við viðskiptavini. BEWI Íslandi er hluti af öflugri starfsemi á Norðurlöndum og starfar í nánu samstarfi við viðskiptavini að því að finna hagkvæmar og áreiðanlegar lausnir fyrir þeirra rekstur.
Sölufulltrúi
BEWI Íslandi leitar að öflugum og metnaðarfullum sölufulltrúa sem vill taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og vexti fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum, byggir auðveldlega upp traust viðskiptasambönd og hefur auga fyrir nýjum viðskiptatækifærum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti og uppbygging viðskiptasambanda við núverandi og nýja viðskiptavini
- Markviss leit að nýjum viðskiptatækifærum
- Kynna vörur og lausnir BEWI og vinna tilboð og verkefni áfram
- Greina þarfir viðskiptavina og finna réttu lausnirnar
- Fylgja eftir tækifærum og halda utan um þau í CRM
- Vinna náið með söluteyminu og öðrum deildum innan fyrirtækisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Metnaðarfullum, jákvæðum og drífandi einstaklingi sem hefur gaman af fólki, samskiptum og sölu
- Reynsla af sölu og þjónustu í sjávarútvegi, matvælaframleiðslu eða sambærilegu er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Skipulagshæfni og góð eftirfylgni
- Góð samskiptahæfni og geta til að byggja upp traust viðskiptasambönd
- Forvitni og skilningur á þörfum viðskiptavina
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur22. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Cuxhavengata 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Söludrifinn aðili óskast
Örugg afritun

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Viðskiptastjóri hjá Vistor
Vistor

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust

Sölufulltrúi – tækifæri til að verða sölustjóri
Gatula ehf.

Vaktstjóri
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Johan Rönning, Akureyri leitar að öflugum söluráðgjafa
Johan Rönning

Verkefnastjóri á sölu- og markaðssviði – Verdi Travel
VERDI Ferðaskrifstofa

Sölumaður í skiltagerð
Fjölprent ehf

Sölumaður varahluta
Hagvangur

Sölumaður á matvörusviði
Danól

Sölu- og þjónusturáðgjafi í Reykjanesbæ
VÍS