Fastus
Fastus

Söluráðgjafi stóreldhúsa

Fastus óskar eftir að ráða metnaðarfullan liðsfélaga í hóp söluráðgjafa Fastus lausna. Söluráðgjafar stóreldhúsa sérhæfa sig í sölu á vörum fyrir stóreldhús og hönnun á eldhúsrýmum.

Við leitum að einstaklingi sem hefur þjónustumiðað viðhorf og víðtæka þekkingu á stóreldhúsum og veitingaþjónustu. Lausnamiðað hugarfar, þverfaglegt samstarf og frumkvæði eru metin mikils. Mikilvægt er að geta lagað sig að líflegu og síbreytilegu umhverfi og boðið er upp á stuðning til að vaxa og þróast í starfi.

Helstu verkefni

  • Fagleg ráðgjöf og sala á vörum og lausnum tengdum stóreldhúsum
  • Hönnun stóreldhúsa
  • Styrkja og efla samskipti við viðskiptavini
  • Öflun nýrra viðskiptatækifæra, tilboðsgerð og eftirfylgni með sölutækifærum
  • Þátttaka í að þróa og efla vöruframboð
  • Samskipti við erlenda og innlenda birgja
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Menntun og reynsla á sviði matreiðslu er skilyrði
  • Reynsla af sölu er kostur
  • Rík þjónustulund og jákvætt viðhorf
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta og reynsla af teikniforritum er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Fastus er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp fjölbreytt og spennandi vöruframboð fyrir fyrirtæki og stofnanir m.a. í heilbrigðisrekstri, veitinga- og ferðaþjónustu. Lögð er áhersla á að veita framúrskarandi þjónustu og að veita bestu mögulegu lausn fyrir viðskiptavini. Hjá fyrirtækinu starfar samstilltur hópur fagfólks sem starfar af metnaði og ánægju, með skýra sýn á þarfir og væntingar viðskiptavina. Fastus hefur hlotið jafnlaunavottun og er með kraftmikið starfsmannafélag sem stuðlar að góðri liðsheild og skemmtilegum starfsanda. Nánari upplýsingar má finna á: www.fastus.is.

Umsóknarfrestur er til og með 24. september 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Vilborg Þórðardóttir ([email protected]).

Auglýsing birt9. september 2026
Umsóknarfrestur24. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MatreiðsluiðnPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar