
Ferro Zink
Ferro Zink ehf. er markaðsdrifið þjónustufyritæki með yfirgripsmikla þjónustu og vörur. Sandblástur og Málmhúðun sf. var stofnað á Akureyri í febrúar árið 1960. Árið 1991 stofnuðu eigendurnir í samvinnu við aðra aðila, Ferro Zink hf. í Hafnarfirði. Voru fyrirtækin sameinuð í ársbyrjun 2008 undir nafninu Ferro Zink hf. Í dag fer starfsemin fram í 3.500 fermetra húsnæði á 20.000 fermetra lóð að Árstíg 6, Akureyri og í 2.500 fermetra húsnæði á 10.000 fermetra lóð að Álfhellu 12-14, Hafnarfirði.

Sölustjóri stáls
Ferro Zink leitar að viðskiptadrifnum og metnaðarfullum sölustjóra stáls til starfa á starfsstöð félagsins í Hafnarfirði. Um er að ræða lykilhlutverk innan félagsins þar sem viðkomandi ber heildarábyrgð á rekstri, sölu og arðsemi stálsviðs Ferro Zink. Sölustjóri mótar verðstefnu sviðsins, stýrir framlegð og gegnir lykilhlutverki í áframhaldandi þróun viðskipta félagsins. Við leitum að einstaklingi með sterka viðskiptavitund, ríka þjónustulund og góðan skilning á verðmyndun, greiningum og kostnaði sem hefur metnað til að byggja upp arðbær og langvarandi viðskiptasambönd.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móta og stýra verðlagningu með hliðsjón af markaðsaðstæðum, kostnaði og framlegðarmarkmiðum
- Gerð og eftirfylgni sölu- og rekstraráætlana
- Annast tilboðsgerð og samningaviðræður
- Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við viðskiptavini
- Greina markaðsþróun, samkeppnisumhverfi og ný tækifæri til vaxtar
- Fylgjast með þróun hrávöruverðs og áhrifum þess á rekstur sviðsins
- Virkt samstarf við innkaup, lager, framleiðslu, fjármál og stjórnendur félagsins
- Þátttaka í stefnumótun og áframhaldandi þróun Ferro Zink
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu, viðskiptaþróun eða rekstrarstýringu
- Sterk viðskiptavitund og góður skilningur á framlegð, kostnaði og verðlagningu
- Reynsla af samningaviðræðum og tilboðsgerð
- Góð greiningarhæfni og færni til að nýta gögn við ákvarðanatöku
- Þekking eða mreynsla af stáliðnaði, byggingariðnaði eða sambærilegum greinum er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og árangursdrifin hugsun
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Viðeigandi menntun er kostur, en reynsla og þekking geta vegið þar upp á móti
Auglýsing birt14. september 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Álfhella 12-14, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri Já
Sýn

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Tæknilegur sölu- og þjónustufulltrúi ProLan
ProLan ehf.

Fjármálasérfræðingur
BYKO

Sölumaður nýrra bíla Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat atvinnubílar
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Deildarstjóri óskast í afleysingu
Frístundamiðstöðin Þorpið

Schengen, fjármál og styrkir – er þetta starf fyrir þig?
Dómsmálaráðuneytið

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.