
Sveitarfélagið Hornafjörður
VELKOMIN TIL HORNAFJARÐAR – ÞAR SEM NÁTTÚRAN, SAMFÉLAGIÐ OG FRAMTÍÐIN MÆTAST
--------
Í Hornafirði býðst þér einstakt tækifæri til að lifa og starfa í einu af öflugustu og fallegustu sveitarfélögum landsins. Hér móta jöklar, fjöll og strandlengja stórbrotið landslag sem veitir bæði innblástur og ró.
Hornafjörður er barnvænt, öruggt og samhent samfélag með öfluga skóla, fjölbreytt tómstundastarf og trausta innviði. Uppbygging er í fullum gangi – í atvinnulífi, þjónustu og menningu – og framtíðin björt.
Hjá Sveitarfélaginu Hornafirði starfar öflugur og samheldin hópur fólks með metnað fyrir framtíð sveitarfélagsins. Íbúar í Hornafirði eru í dag rúmlega 2800 og hefur fjölgun síðustu ára verið á forsendum verðmætasköpunar en mikil uppbygging á sér nú stað í sveitarfélaginu.
Ef þú leitar að lífsgæðum, nánara sambandi við náttúruna og samfélagi þar sem framlag þitt skiptir máli – þá er Hornafjörður rétti staðurinn fyrir þig.

Leiðtogi í umhverfis- og skipulagsmálum
Ert þú framsýnn og skipulagður leiðtogi? Sveitarfélagið Hornafjörður leitar að öflugum einstaklingi í starf skipulagsfulltrúa, sem jafnframt gegnir veigamiklu hlutverki sem deildarstjóri umhverfis- og skipulagsdeildar.
Hér er á ferðinni spennandi lykilhlutverk þar sem þú færð tækifæri til að leiða mikilvæga þróun og taka beinan þátt í uppbyggingu og mótun á sjálfbærri og blómlegri framtíð samfélagsins á þessum einstaka stað. Ertu tilbúin(n) að takast á við krefjandi en jafnframt afar gefandi verkefni?
Starfið er 100% og staðbundið í Hornafirði, í nánd við stórbrotið náttúrufar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með öflugu teymi sem samanstendur af umhverfisfulltrúa og verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála.
- Yfirumsjón með öllum skipulagsmálum sveitarfélagsins, þar á meðal gerð og endurskoðun aðal- og deiliskipulags í samræmi við sýn sveitarfélagsins.
- Undirbúningur mála fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd, útgáfa framkvæmdaleyfa og túlkun skipulagsskilmála.
- Umsjón með landupplýsingum, kortagrunnum og úthlutun lóða, ásamt utanumhaldi landeigna.
- Gerð umsagna um laga- og reglugerðarbreytingar og eftirlit með skipulagsmálum aðliggjandi sveitarfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Umsækjandi þarf að uppfylla hæfisskilyrði 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Reynsla af skipulagsmálum er nauðsynleg. Reynsla af opinberri stjórnsýslu og mannaforráðum er stór kostur.
- Jákvæðni, lipurð í samskiptum, rík þjónustulund og hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á skýran hátt.
- Drifkraftur, sjálfstæð vinnubrögð og mjög góð færni í íslensku.
- Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni sem tengist starfssviðinu.
Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur27. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnarbraut 27, 780 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiJákvæðniMetnaðurNákvæmniOpinber stjórnsýslaSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fjölbreytt skrifstofustarf
Eignaþjónusta Akureyrar

Framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands
Rafíþróttasamband Íslands

Byggingarverk- eða tæknifræðingur
JTV ehf

Deildarstjóri / Fasteignaumsjón og sérverkefni
Dagar hf.

Bókari hjá Akraneskaupstað
Akraneskaupstaður

Aðstoðarrekstrarstjóri
Flatey Pizza

Bókari og Uppgjörsaðili
Fjárheimar ehf.

Verkefnastjóri á verkefnastofu
Landspítali

Gæðasérfræðingur - sjór
Kaldvík hf.

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf

Rekstrarstjóri ævintýraferða á Adventure Ground og í Skaftafelli
Icelandia

Sérfræðistarf á þjónustusviði, Akureyri
Skatturinn