Dagar hf.
Dagar hf.
Dagar hf.

Deildarstjóri / Fasteignaumsjón og sérverkefni

Deildarstjóri fasteignaumsjónar og sérverkefna ber ábyrgð á stjórnun, rekstri og þróun verkefna tengt fasteignaumsjón ásamt framkvæmd og eftirfylgni sérverkefna. Starfið felur í sér ábyrgð á þjónustugæðum, rekstrarárangri, ánægju viðskiptavina, fjárhagslegum árangri, framkvæmd samninga og skilvirkri stjórnun deildarinnar.

Deildarstjóri vinnur náið með stjórnendum, fjármála- og rekstrarsviði og öðrum stoðsviðum ásamt verkkaupendum, fasteignaeigendum og öðrum samstarfsaðilum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bera ábyrgð á daglegum rekstri deildar fasteignaumsjónar og sérverkefna. 

  • Stýra, styðja og þróa starfsfólk deildarinnar. 

  • Forgangsraða verkefnum og mannafla í samræmi við verkefni og þarfir viðskiptavina. 

  • Fylgjast með árangri deildarinnar og stuðla að stöðugum umbótum.  

  • Stuðla að vexti og þróun þjónustu fyrirtækisins á sviði fasteignaumsjónar og sérverkefna.  

  • Fylgjast með kostnaði og greina frávik frá samþykktum áætlunum. 

  • Fylgjast með kostnaði einstakra framkvæmda og sérverkefna. 

  • Hafa umsjón með samningum sem tengjast fasteignarekstri, viðhaldi og framkvæmdum. 

  • Taka þátt í útboðum, verðfyrirspurnum og samningaviðræðum. 

  • Setja markmið fyrir deildina og fylgja eftir árangri. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.  

  • Reynsla af fasteignarekstri, framkvæmdum eða verkefna stjórnun æskileg. 

  • Reynsla af stjórnun er æskileg. 

  • Reynsla af fjárhagsáætlunum og kostnaðareftirliti kostur. 

  • Þekking á samningagerð, innkaupum og samskiptum við verktaka er kostur. 

  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi. 

Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur21. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lyngás 17, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar